Mikil fundahöld eru á vegum sveitarfélaga þessa dagana í Reykjavík. Aðalfundur Jöfnunarsjóðs var í gær og í dag hefst árleg fjármálaráðstefna í Vör, farþegamiðstöð við Skarfabakka.
26 sveitarfélög nýttu tækifærið og stofnuðu Samtök sveitarfélaga í landbúnaði í gær.
„Það er auðvitað bara tilgangur þessara samtaka að gæta hagsmuna þeirra sveitarfélaga þar sem landbúnaður er stór og mikill þáttur í atvinnulífi þeirra,“ segir Jón Björn Hákonarson.
Jón, sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit, var kjörinn formaður samtakanna á stofnfundinum. Aðeins eru nokkrar vikur síðan hann lét af störfum sem formaður Samtaka íslenskra sveitarfélaga.
„Við erum að horfa út frá sjónarhorni sveitarfélaga, ég veit að það verður gott og þétt samstarf, þá erum við samt að gæta hagsmuna sveitarfélaganna og við erum að horfa á málin sem víðast, bæði út frá fæðuörygginu, atvinnuuppbyggingu og út frá dreifbýli,“ segir Jón um muninn á þessum nýju samtökum og öðrum hagsmunasamtökum um landbúnað.
Hann bendir á hversu vel Samtök sveitarfélaga í sjávarútvegi hafi gert og vill að hin nýstofnuðu samtök verji hagsmuni landbúnaðar í hvívetna.
Það eru víðsjárverð veður í heiminum í dag og við erum eyja. Við þurfum að sjá til þess að við getum fætt okkur. Við teljum að landbúnaðurinn sé gríðarlega mikilvægur þáttur í því. Ég held að það sé mikilvægt, það ýtir eflaust á þetta núna. En líka, við viljum efla landbúnað, landbúnaður þarf að komast í sókn.