Formaður VR segir að stéttarfélagið og fagfélögin hafi teygt sig langt nú þegar í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Nú velti framhaldið á samtökunum.
„Við erum með kjarasamningsuppsagnirnar í skottinu“
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og fulltrúar fagfélaganna áttu fund með forsætisráðherra í ráðherrabústaðnum í hádeginu. Fundi lauk fyrir rúmum hálftíma og ræddi Halla þá stuttlega við fréttamenn fyrir utan. Hún segir fundinn hafa verið góðan.
„Forsætisráðherra hefur verið að beita sér fyrir því að reyna að höggva á hnútinn í þessari deilu. Hún er búin að teygja sig eins langt og hún getur. Nú er næsta skref að fara upp til Samtaka atvinnulífsins og eiga orð við þau,“ sagði Halla.
Hún segist ekki geta tjáð sig um hvað ríkisstjórnin sé að bjóða til að liðka fyrir að samningar haldi. Það sé nú undir Samtökum atvinnulífsins komið hvort kjarasamningum verði sagt upp í dag.
„Núna ætlum við beint þangað að reyna að taka lokasamtal. Við erum með kjarasamningauppsagnirnar í skottinu. Það er búið að undirrita uppsagnir á 43 kjarasamningum af hálfu fagfélaganna og þremur af hálfu okkar í VR,“ segir Halla.
„Við tökum þá með okkur en vonumst til þess að hér náist að koma síðasta púslinu inn í þessa mynd sem eru Samtök atvinnulífsins.“
Sveiflast frá svartsýni til bjartsýni
Halla segist sátt við aðkomu forsætisráðherra að viðræðunum.
„Mér finnst hún taka þessari stöðu alvarlega og hafa reynt allt hvað hún getur til að beita sér fyrir lausn mála.“
VR, LÍV og fagfélögin hafi teygt sig mjög langt. Boltinn sé hjá Samtökum atvinnulífsins.
„Nú þurfa þau að teygja sig aðeins á móti og þá getum við landað þessu.“
Spurð hvort hún sé bjartsýn á að samningar haldi sagði Halla.
„Ég sveiflast rosalega frá svartsýni til bjartsýni. Það er stormur í dag.“