Christa Pike, sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, er komin á fætur og farin að ganga um sjúkrastofuna þar sem hún hefur dvalið.
Mál Pike komst í hámæli á dögunum eftir að hún lifði af aftökutilraunirnar en hún var á dauðadeild fyrir morð sem hún framdi þegar hún var átján ára, fyrir rúmum þrjátíu árum.
Lögmaður Pike segir hana nú vera farna að ganga um sjúkrastofuna þótt hún sé enn vönkuð eftir atburði undanfarinna daga.
Hún er auk þess sögð vera með bólgna og brunna handleggi eftir að banvæna efninu pentóbarbítól var sprautað í þá.
Hefur vakið umræður um dauðarefsingar í Bandaríkjunum
Pike er talin vera eina manneskjan sem vitað er til að hafi lifað af aftöku með því efni.
Örlög Pike hafa endurvakið umræðu um dauðarefsingar í Bandaríkjunum.
Í Tennessee hefur aftökum verið frestað út árið þar til óháð rannsókn hefur farið fram á því hvað fór úrskeiðis.
Dómstóll hefur fyrirskipað yfirvöldum í Tennessee að varðveita öll gögn og sönnunargögn tengd aftökutilrauninni þar sem þau gætu orðið grundvöllur fyrir málsókn gegn ríkinu.
Á meðan er óljóst hvað tekur við hjá Pike og hvort yfirvöld í Tennessee muni reyna aftur að fullnusta dauðadóm hennar.