„Það er tvennt sem kemur til til þess að ég geti gengið sátt frá borði,“ sagði Halla Gunnarsdóttir formaður VR stuttu eftir að tilkynnt var að kjarasamningar VR, LÍV og fagfélaganna við SA myndu halda.
Það hafi verið útspil forsætisráðherra sem fól í sér vaxtabótaauka og forsenduákvæði sem hún telur að veiti ákveðnar varnir en taki einnig tillit til áskorana fyrirtækja.
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að unnið hafi verið með forsenduákvæði sem ekki eigi við aðra kjarasamninga. Það varðar verðbólguviðmið á næsta ári. Greint verði frá því síðar. Horft sé til 12 mánaða verðbólgu og 6 mánaða mælinga.
Hann telur að samningar við VR muni ekki setja aðra kjarasamninga í uppnám en Breiðfylking Starfsgreinasambands Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn framlengdu sína samninga við SA á þriðjudaginn.
„Við náðum saman hér um samkomulag og nú þurfum við svona aðeins að vinna einhverja smá vinnu í því,“ sagði Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, þegar hann tjáði sig.
Niðurstaðan hafi komið eftir jafna og þétta vinnu yfir daginn. Hann segir að enn eigi eftir að klára samkomulagið betur áður en það verði kynnt formlega.
Boðað hefur verið til blaðamannafundar um kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í Ráðherrabústaðnum klukkan 17:30.
Á fundinum verða forsætisráðherra, forseti Alþýðusambands Íslands, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.