„Dóttir okkar Sögu mætti yfirveguð og fullkomin þ. 27.09.26 kl. 12:34,“ skrifar Villi í færslu á samfélagsmiðlum og birtir nokkrar myndir af dótturinni.
„Hjartað stækkaði og hún er afar mikið elskuð,“ skrifaði hann jafnframt.
Saga og Vilhelm hafa verið par frá árinu 2019 og eignuðust saman soninn Hring í mars árið 2023. Listin er allsráðandi á heimilinu en þau hafa boðið gestum og gangandi í opna vinnustofu sem þau halda saman.