Nicole Leigh Mosty, formaður Fjölmenningarseturs og fyrrverandi þingkona Bjartrar framtíðar, segir nýtt frumvarp Sjálfstæðisflokksins sýna útlendingaandúð. Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að yfirvöld rukki fyrir túlkaþjónustu.„Frumvarp um gjaldtöku fyrir túlkun er kynnt sem vörn fyrir íslenska tungu. Í raun sendir það innflytjendum reikninginn fyrir íslenskukennsluna sem ríkið veitti þeim ekki,“ segir Nicole í aðsendri grein með yfirskriftinni „Útlendingaandúð í málverndarbúningi,“ á Vísi. Segir hún að þessi vinnubrögð hafi þegar tekið sér rætur í borgarstjórn Reykjavíkur.
Nicole harðorð í garð frumvarps Sjálfstæðismanna – „Jafnvel fasismi í sinni tærustu mynd“