Frammistaða nemenda í Reykjavík og Kópavogi í PISA 2025 var yfir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum rannsóknarinnar, þ.e. vísindum, stærðfræðilæsi og lesskilningi. Þetta kemur fram í greiningu mennta- og barnamálaráðuneytisins en þar kemur eins fram að nemendur í Reykjanesbæ hafi staðið sig verr en nemendur gerðu að jafnaði á landsvísu á öllum þremur sviðunum og nemendur í Hafnarfirði stóðu sig verr í vísindum og lesskilningi.
Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA og með mestu afburðahæfnina