Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels
Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson fær bókmenntaverðlaun Nóbels. Tilkynnt var um ákvörðun nóbelsnefndarinnar í dag.
Rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels. Carson er 76 ára og upprunalega frá Kanda en hefur íslenska ríkisborgararétt.
Verk hennar fara gjarnan yfir mörk ljóða, esseyja og skáldsagna. Hún sækir efnivið í klassískar bókmenntir og goðafræði en tengir hann samtímanum og viðfangsefnum á borð við ást, þrá og missi.
Meðal þekktustu verka hennar er Autobiography of Red frá 1998, skáldsaga í ljóðum sem endurvinnur grísku goðsögnina um Gerýon og Herakles sem samtímalega ástarsögu. Annað þekkt verk er The Beauty of the Husband frá 2001, um hjónaband og sambandsslit. Fyrir það varð hún fyrsta konan til að hljóta T. S. Eliot-ljóðaverðlaunin.
Carson fæddist í Toronto í Kanada 21. júní 1950. Hún lauk doktorsprófi í klassískum fræðum við Toronto-háskóla árið 1981 og hefur kennt við ýmsa háskóla í Kanada og Bandaríkjunum, meðal annars McGill og Princeton. Hún hefur jafnframt þýtt verk forngrískra höfunda, þar á meðal Saffó og Evripídesar.
Alþingi veitti Carson …