Smartland greindi frá þessum tíðindum og ræddi við Herbert um týnda soninn.
„Mér finnst þetta bara æðislegt. Ég á sjö börn fyrir og þetta er áttunda barnið,“ sagði Herbert við Smartland. Alls á hann eina dóttur og sjö syni, þar af einn sem er uppeldissonur hans.
Herbert var í heimsókn hjá vini sínum, tónlistarmanninum Geir Ólafs, í Kólumbíu í janúar þegar Arnar sendi honum tölvupóstinn og sagði bráðabirgða DNA-próf benda til þess að Herbert væri faðir hans. Arnar er fæddur árið 1993 og úr Vestmannaeyjum sem vakti minningar hjá Herberti.
„Ég hafði farið til Eyja árið 1992 og var að skemmta á níunda áratugar þemakvöldi hjá Pálma Lór, sem var með veitingastað í Eyjum. Þar hitti ég yndislega konu og við náðum ofsalega vel saman,“ sagði Herbert í viðtalinu.
„Ekkert vesen, engin skömm“
Feðgarnir hittust svo í fyrsta sinn og fengu sér pítsu þegar Herbert kom heim frá Kólumbíu og voru tveir synir hans, Róbert Már og Guðmundur, einnig með í för. Þar tóku feðgarnir DNA-próf og var sýnunum úr því komið áleiðis til Bandaríkjanna í rannsókn. Tveimur vikum síðar hafi niðurstaðan legið fyrir og staðfest faðernið.
„Mér finnst þetta bara æðislegt. Ég var ofsalega þakklátur. Þetta var algjör gleði og það tóku allir ofsalega vel í þetta,“ sagði Herbert um það sem hefði farið í gegnum huga hans þegar niðurstaðan lá fyrir. Hann gaf síðan út lagið „Þakklæti“ í sumar til heiðurs Arnari.
„Þetta er mikil gleði, bæði hans megin og mín megin. Ekkert vesen, engin skömm, engin neikvæðni og allir góðir,“ sagði Herbert við viðbrögð fjölskyldnanna.
Eyru og höku föðurins
Ekki nóg með að fá nýjan son heldur varð Herbert líka afi í þrettánda sinn þegar Arnar eignaðist dóttur 1. apríl síðastliðinn.
„Þá eignaðist hann litla dúllu sem er algjör prinsessa, svo yndislega falleg,“ sagði Herbert um sonardótturina við Smartlans.
Feðgarnir eigi tónlistina sameiginlega og Herbert segir Arnar spila frábærlega á gítar. Þá beri sonurinn líka ákveðin útlitseinkenni föðurins.
„Hann er mjög líkur móðurættinni. En þegar maður skoðar hann náið er hann með eins eyru og ég og líka höku eins og ég. Svo er litla stelpan hans svolítið lík afa sínum. Hún er með hökuna mína og er svolítið rauðbirkin, eins og ég var þegar ég var krakki,“ sagði Herbert.