Siglingar, safarí og suð­rænar strendur meðal spennandi sér­ferða - Vísir

Siglingar, safarí og suð­rænar strendur meðal spennandi sér­ferða - Vísir

Siglingar, safarí og suð­rænar strendur meðal spennandi sér­ferða - Vísir

„Við leggjum mikla áherslu á að bjóða fjölbreyttar sérferðir þannig að sem flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Í þessum ferðum skiptir miklu máli að fólk geti notið þess að ferðast án þess að þurfa sjálft að hafa áhyggjur af öllum smáatriðunum,“ segir Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir, forstöðumaður hjá Úrval Útsýn.

Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir er forstöðumaður hjá Úrval Útsýn. Brynjólfur Löve.

Hún segir áherslu lagða á vandaða gistingu, góðan aðbúnað, þægilegar dagleiðir, hæfilega stóra hópa og reynslumikla fararstjóra. „Markmiðið er að fólk fái sem mest út úr ferðinni, kynnist nýjum stöðum og menningu og komi heim með fullt af góðum minningum.“

Við skulum líta nánar á nokkrar af þeim spennandi sérferðum sem eru fram undan.

Jólamarkaðurinn á Römerberg í Frankfurt, einum af viðkomustöðum aðventusiglingarinnar um Rín og Main.

Aðventusiglingar um Rín og Main

Aðventusigling um Rín og Main er sex daga ferð sem sameinar það besta við evrópska aðventu: glæsilega jólamarkaði í fjórum sögufrægum borgum og afslappandi siglingu um árnar Main og Rín.

Ferðin stendur yfir dagana 27. nóvember-2. desember og er siglt með skipinu MS Tiara þar sem allt fæði og allir drykkir eru innifaldir í verðinu. „Við ætlum að heimsækja borgirnar Frankfurt, Speyer, Strasbourg og Mainz en hver viðkomustaður býður upp á sína einstöku jólatöfra og sögu,“ segir Ingibjörg. 

Fararstjóri er Ingibjörg Lárusdóttir. Hún hefur starfað í ferðaþjónustu í fjölda ára, samhliða störfum sínum sem lögfræðingur. Ingibjörg hefur verið fararstjóri fyrir Úrval Útsýn í ferðum m.a. Taílands, Ítalíu, Þýskalands, Frakklands og Grikklands, auk þess að hafa stýrt siglingum víða um heim.

Sól, sjór og bátalíf við strendur Ilhabela í Brasilíu.

Draumasigling um nokkrar perlur Suður-Ameríku

Í þessari spennandi ferð er boðið upp á siglingu með Costa Serena með viðkomu í Úrúgvæ og á nokkrum af fegurstu stöðum Brasilíu. Ferðin hefst í hinni litríku og heillandi höfuðborg Argentínu, Buenos Aires, þar sem hópurinn fær tíma til að kynnast borginni áður en haldið er um borð í Costa Serena.

„Fyrst er siglt til Montevideo sem er höfuðborg Úrúgvæ. Borgin stendur við Río de la Plata og sameinar fallega gamla borgarhluta, torg, markaði og afslappað suður-amerískt borgarlíf,“ segir Ingibjörg.

„Næst er siglt meðfram stórbrotinni strandlengju Brasilíu þar sem ferðalangar fá að kynnast brasilískri strandmenningu, grænum eyjum og tærbláum sjó, fallegu eyjunni Ilhabela og hinni stórbrotnu Rio de Janeiro.

Íslensk fararstjórn er í höndum Ingibjargar Lárusdóttur sem hefur einstaka nærveru og leysir úr öllum málum eins og hendi sé veifað.“

Stórbrotið lón á Coron-svæðinu á Palawan á Filippseyjum.

Ógleymanleg ævintýraferð til Filippseyja

Dagana 6.–21. mars 2027 býður Úrval Útsýn upp á ævintýraferð til Filippseyja þar sem ferðalangar kynnast nokkrum af fegurstu stöðum þessa einstaka eyjaklasa. Fararstjóri er Kristján Steinsson, einn reyndasti fararstjóri Úrval Útsýnar, en hann hefur starfað í ferðabransanum í yfir 30 ár og er menntaður leiðsögumaður og ferðamálafræðingur.

„Ferðin hefst í Manila þar sem meðal annars verður farið um sögufræga borgarhlutann Intramuros. Þaðan liggur leiðin til Boracay, sem er þekkt fyrir silkimjúkar, hvítar strendur og tærbláan sjó, og áfram til Bohol þar sem hin frægu Chocolate Hills eru meðal viðkomustaða.“

Einnig verður dvalið í El Nido og Coron á Palawan þar sem stórbrotnir kalksteinaklettar, falin lón og paradísarstrendur setja svip sinn á landslagið. „Þar verður meðal annars siglt milli eyja, farið á kajak, snorklað við litrík kóralrif og synt í tærum lónum.“

Marseille, elsta borg Frakklands, er einn af viðkomustöðum í páskasiglingunni um Miðjarðarhafið.

Páskasigling um Miðjarðarhafið

Glæsileg páskaferð um Miðjarðarhafið er meðal þess sem Úrval Útsýn býður upp á vorið 2027. Ferðin verður farin 18.–28. mars og siglt verður um Miðjarðarhafið með hinu glæsilega skemmtiferðaskipi Costa Toscana. Ferðin hefst og lýkur í Róm og þar verður gist bæði fyrir og eftir siglinguna. Fararstjóri er Kristín A. Árnadóttir, fyrrverandi sendiherra sem meðal annars hefur gegnt sendiherrastöðum í Helsinki, Vín og Peking.

„Frá Róm er haldið um borð í Costa Toscana og siglt til Savona á ítölsku rívíerunni. Þaðan liggur leiðin til Marseille, elstu borgar Frakklands, og síðan til Barcelona þar sem meðal annars má njóta stórbrotinnar byggingarlistar Gaudís og iðandi borgarlífs,“ segir Ingibjörg.

„Næsti áfangastaður er Palma á Mallorca með sínum fallega gamla bæ og glæsilegu La Seu-dómkirkju. Eftir dag á siglingu er komið til Palermo á Sikiley áður en haldið er aftur til Rómar þar sem ferðalangar fá tíma til að njóta borgarinnar.“

Gergeti-hofið í Kazbegi er einn af hápunktum ferðarinnar um Georgíu og Armeníu, umlukið stórbrotnu landslagi Kákasusfjallanna.

Kákasusævintýri í Georgíu og Armeníu

Saga, menning og stórbrotin náttúra Kákasusfjallanna leika lykilhlutverk í ævintýraferð Úrval Útsýnar um Georgíu og Armeníu, sem farin verður 15.–25. apríl 2027. Fararstjórn er í höndum hins reynslumikla Kristjáns Steinssonar.

„Ferðin hefst í Armeníu þar sem höfuðborgin Yerevan, hið forna Khor Virap-klaustur og Ararat-fjall eru meðal hápunkta. Þaðan liggur leiðin meðal annars um Dilijan og áfram til Georgíu. Þar verður komið við í Kákasusfjöllunum og hinu þekkta Gergeti-hofi í Kazbegi áður en haldið er til höfuðborgarinnar Tbilisi,“ segir Ingibjörg.

„Ferðalangar kynnast jafnframt hinu rómaða vínræktarhéraði Kakheti og fá að njóta fjölbreyttrar matarmenningar svæðisins, auk þess að upplifa fornan menningararf og tilkomumikið fjallalandslag þessara tveggja sögufrægu landa.“

Pantheon í Róm er ein best varðveitta bygging Forn-Rómar og var upphaflega hof helgað öllum guðum Rómverja.

Töfrar Rómar á einni viku

Saga Rómar lifnar við í þessari vikuferð Úrval Útsýnar 23.–30. apríl 2027 þar sem farið verður um slóðir keisara og páfa, auk þess sem ítölsk vínmenning fær sinn sess. Fararstjóri er Benedikt Sigurðsson, prestur í Garðaprestakalli, mikill útivistarmaður sem hefur ferðast víða um Ísland með hópa.

„Meðal þekktustu kennileita á leiðinni eru Spænsku tröppurnar, Trevi-brunnurinn, Pantheon og Piazza Navona. Einnig verður horfið aftur til tíma Rómaveldis við Colosseum, Forum Romanum og Palatínhæð.“

Vatíkanið verður sömuleiðis heimsótt þar sem Vatíkansöfnin, Sixtínska kapellan og Péturskirkjan eru meðal hápunkta. „Að lokum verður stórborgin skilin eftir um stund og haldið í Albano-hæðirnar. Þar verður fjölskyldurekinn vínbóndabær heimsóttur og Frascati-vín smakkað í ítalskri sveitasælu.“

Borðfjallið gnæfir yfir Höfðaborg í Suður-Afríku, sveipað sínu einkennandi skýjateppi. Til hægri sést Camps Bay og fjallgarðurinn Tólfpostularnir.

Ævintýraferð til Suður-Afríku

Stórbrotin náttúra, fjölbreytt dýralíf og vínrækt eru meðal þess sem bíður ferðalanga í 15 daga ævintýraferð Úrval Útsýnar til Suður-Afríku. Fararstjóri er Tómas Bolli Hafþórsson sem þekkir landið afar vel og hefur ferðast þangað reglulega síðustu 16 ár.

„Ferðin hefst í Höfðaborg þar sem meðal annars verður farið upp á hið tignarlega Table Mountain og komið við á V&A Waterfront. Einnig verður ekið um Kápuskagann eftir hinni stórbrotnu Chapman's Peak Drive, með viðkomu við Góðrarvonarhöfða og Cape Point.“

Í vínhéraðinu við Franschhoek verður ferðast milli sögufrægra vínbúgarða áður en haldið er inn í Karoo-hálfeyðimörkina. „Þar verður gist á Inverdoorn-safarísvæðinu og farið í safarí í leit að fjölbreyttu dýralífi. Strandbærinn Hermanus, sem er þekktur fyrir hvalaskoðun, er síðan meðal síðustu viðkomustaða áður en haldið er aftur til Höfðaborgar.“

Þinghúsið í Búdapest við bakka Dónár í morgunbirtunni. Byggingin er eitt þekktasta kennileiti höfuðborgar Ungverjalands.

Stórkostleg sigling um Dóná til Svartahafs

Á þessari ævintýralegu siglingu með VIVA Cruises er ferðast um hjarta Evrópu eftir Dóná, allt frá Passau í Þýskalandi til Svartahafs og aftur til baka. Á leiðinni er siglt um átta lönd og komið við í fjölmörgum sögufrægum borgum og bæjum.

„Meðal helstu áfangastaða eru Vín í Austurríki og Búdapest í Ungverjalandi áður en haldið er áfram til Novi Sad og Belgrad í Serbíu. Þaðan liggur leiðin meðal annars til Ruse og Vidin í Búlgaríu og áfram til Rúmeníu,“ segir Ingibjörg.

„Einn af hápunktum ferðarinnar er siglingin um Járnhliðin, stórbrotið gljúfrasvæði á landamærum Serbíu og Rúmeníu þar sem Dóná liðast milli háreistra kletta. Um borð er allt fæði innifalið ásamt áfengum og óáfengum drykkjum og hægt er að njóta heita pottsins, sólardekksins og spa-aðstöðu skipsins á milli áfangastaða.“

Kynntur þér þessar spennandi sérferðir og fleiri til á vef Úrvals Útsýnar.

#meðal #safarí #siglingar #strendur #suðrænar

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262945291d/siglingar-safari-og-sud-raenar-strendur-medal-spennandi-ser-ferda

📰 Aðrar fréttir

Rannsókn leiddi í ljós að söngvarinn og afleysingamaðurinn voru í raun einn og sami maðurinn: „Þetta var náttúrulega ótrúlegt lotterí“
📅 08.10.2026 👁️ 0
Rannsókn leiddi í ljós að söngvarinn og afleysingamaðurinn voru í raun einn og sami maðurinn: „Þetta var náttúrulega ótrúlegt lotterí“
Hljómsveitin Á móti sól fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og ætlar að halda upp á tímamótin með stórtónleikum í Háskólabíói í október.
Botnar ekkert í framgöngunni – „Við Kristín ljúgum upp á fólk og uppnefnum það“
📅 08.10.2026 👁️ 0
Botnar ekkert í framgöngunni – „Við Kristín ljúgum upp á fólk og uppnefnum það“
Ólöf Skaftadóttir, sem heldur úti vinsæla hlaðvarpinu Komið gott ásamt Kristínu Gunnarsdóttur, segir að þær stöllur muni frekar hætta með hlaðvarpið e...
Halla: „Sjónin ætti að beinast að Samtökum atvinnulífsins sem eru að hleypa öllu í upplausn“
📅 08.10.2026 👁️ 0
Halla: „Sjónin ætti að beinast að Samtökum atvinnulífsins sem eru að hleypa öllu í upplausn“
„Fresturinn okkar til að slíta kjarasamningum rennur út klukkan fjögur í dag og við höfum verið algjörlega skýr í því að ef við fáum ekki lausnamiðað ...
Tennis, tón­list og sam­félag: Happ­drætti Blindra­fé­lagsins skiptir máli - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 0
Tennis, tón­list og sam­félag: Happ­drætti Blindra­fé­lagsins skiptir máli - Vísir
„Við erum með sumar- og vetrarhappdrætti á hverju ári. Þetta er mikilvægur liður í fjáröflun okkar, enda reiðum við okkur að mestu leyti á sjálfsaflaf...
Bein út­sending: Fjár­málaráð­stefna sveitar­fé­laga 2026 - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 0
Bein út­sending: Fjár­málaráð­stefna sveitar­fé­laga 2026 - Vísir
Almar Guðmundsson, formaður stjórnar Sambandsins, mun setja þingið, en auk þess munu Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambandsins, Ásgeir Jónsson...
Setti upp myndavélar og kom þá upp um óhugnað stjúpföður síns – Meig í vatnsflöskur dauðvona móður
📅 08.10.2026 👁️ 1
Setti upp myndavélar og kom þá upp um óhugnað stjúpföður síns – Meig í vatnsflöskur dauðvona móður
Breskur atvinnurekandi á sjötugsaldri hefur verið dæmdur fyrir heimilisofbeldi gagnvart dauðvona fyrrverandi eiginkonu sinni. Meig hann meðal annars í...
Breskur her­maður á­kærður fyrir njósnir - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Breskur her­maður á­kærður fyrir njósnir - Vísir
Liðsmaðurinn heitir Teddy Young og er 24 ára gamall. Hann hefur verið ákærður fyrir brot á þjóðaröryggislögum Bretlands og á að koma fyrir Westminster...
12 drepnir í árás á rútu
📅 08.10.2026 👁️ 2
12 drepnir í árás á rútu
Í það minnsta 12 voru drepnir og 14 særðust þegar Rússar réðust á rútu í Kramatorsk nærri víglínunni í austanverðri Úkraínu.Saksóknari í héraðinu grei...
BBC to cut raft of Radio 4 programmes including You and Yours
📅 08.10.2026 👁️ 2
BBC to cut raft of Radio 4 programmes including You and Yours
The corporation said it would be investing in a new consumer programme, while announcing more cuts.
Christa Pike now walking after US execution went wrong, lawyer says
📅 08.10.2026 👁️ 2
Christa Pike now walking after US execution went wrong, lawyer says
A lawyer says the murderer of Colleen Slemmer is moving around her hospital room after surviving two lethal injections.
Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ - Vísir
VR fundaði með Samtökum atvinnulífsins í gærmorgun en segir Halla viðbrögð þeirra og vilja til að koma til móts við þau lítinn sem engan. Í gærkvöldi ...
Einar og Baldur hár-sárir yfir hárlista Smartlands
📅 08.10.2026 👁️ 2
Einar og Baldur hár-sárir yfir hárlista Smartlands
Einar Bárðarson og Baldur Örn Gylfason fara að venju um víðan völl í nýjasta þætti Menn eins og við en ná illa að leyna vonbrigðum sínum yfir nýlegum ...
Tilfinningaþrungin brúðkaupsræða tengdamóður klámstjörnunnar
📅 08.10.2026 👁️ 2
Tilfinningaþrungin brúðkaupsræða tengdamóður klámstjörnunnar
Ástralska klámstjarnan Annie Knight gekk í hnapphelduna um helgina. Tengdamóðir hennar hélt tilfinningaþrungna ræðu í veislunni en það vakti mikla ath...
Stytta af Trump til sýnis í Evrópuþinginu – „Appelsínugula plágan“
📅 08.10.2026 👁️ 2
Stytta af Trump til sýnis í Evrópuþinginu – „Appelsínugula plágan“
Um þriggja metra gyllt stytta hefur verið afhjúpuð í einni byggingu Evrópuþingsins í Strassborg. Kallast hún „Appelsínugula plágan“ og er augljóslega ...
Hættu við að ræða upp­lýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkja­stjórn - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Hættu við að ræða upp­lýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkja­stjórn - Vísir
Ráðstefnan #Disinfo2026 fer fram í Vilníus, höfuðborg Litáens og hófst í gær. Þar eru til umræðu tilraunir ýmissa aðila til þess að bregla almannaumræ...
Margaret Hamilton látin
📅 08.10.2026 👁️ 2
Margaret Hamilton látin
Margaret Hamilton látin Frum­kvöð­ull­inn Marga­ret Hamilt­on stýrði þró­un tölvu­kerf­is­ins sem not­að var í tung­láætl­un NASA. Hún var fyrsti for­...
Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð - Vísir
Þangað fór Rubio frá Íslandi í fyrradag til að ræða við gríska ráðamenn um samstarf Bandaríkjanna og Grikklands á ýmsum sviðum. Í dag mun hann svo far...
5,500 extra flight seats added for bank holiday weekend in the Canary Islands
📅 08.10.2026 👁️ 2
5,500 extra flight seats added for bank holiday weekend in the Canary Islands
Thousands of extra airline seats are being added between the Canary Islands to cope with increased demand over the forthcoming Bank Holiday weekend.Bi...
For British expats in the Canaries, paying by phone bill for a UK casino account just got a bit more complicated
📅 08.10.2026 👁️ 2
For British expats in the Canaries, paying by phone bill for a UK casino account just got a bit more complicated
Plenty of Brits who have settled in Tenerife, Gran Canaria, Lanzarote or Fuerteventura still keep a UK SIM, either in a second slot on the phone or in...
Ekkert breyst frá því stjórn VR ákvað að segja samningi upp
📅 08.10.2026 👁️ 2
Ekkert breyst frá því stjórn VR ákvað að segja samningi upp
„Það stendur til að segja upp samningum í dag. Það hefur ekkert gerst frá því að stjórn fundaði í gærkvöldi og þar til núna sem gefur okkur tilefni ti...
Samþykktu að slíta kjarasamningum
📅 08.10.2026 👁️ 2
Samþykktu að slíta kjarasamningum
Samþykktu að slíta kjarasamningum Stjórn VR hef­ur sam­þykkt að slíta kjara­samn­ing­um sín­um við Sam­tök at­vinnu­lífs­ins í dag. For­send­ur sem ák...
Royal Navy service member charged with spying
📅 08.10.2026 👁️ 2
Royal Navy service member charged with spying
The 24-year-old man is due to appear at Westminster Magistrates’ Court on Thursday after being arrested at his home in Bedfordshire.
Royal Navy service member charged with spying for a foreign power

Konan sem var borin út er látin - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Konan sem var borin út er látin - Vísir
Fasteignafélagið sem átti íbúðina hafði hækkað leiguna umtalsvert svo hún gat ekki greitt hana. Við þetta urðu íbúar borgarinnar ósáttir og boðað var ...
Maður af sómölskum uppruna ætlaði að myrða allt að 60 manns í nafni Isis – Vildi drepa alla sem væru ekki múslimar
📅 08.10.2026 👁️ 3
Maður af sómölskum uppruna ætlaði að myrða allt að 60 manns í nafni Isis – Vildi drepa alla sem væru ekki múslimar
Átján ára maður hefur verið handtekinn í Minnesota í Bandaríkjunum, grunaður um að undirbúa fjöldamorð í verslunarmiðstöðinni Mall of America í nafni ...
Er Skúli Mog að selja túr­istum niður­greitt kornsíróp? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Er Skúli Mog að selja túr­istum niður­greitt kornsíróp? - Vísir
„Hvers vegna eru Bandaríkjamenn feitir?“ spurði blaðamaðurinn Michael Pollan í metsölubókinni The Omnivore’s Dilemma sem í ár á 20 ára útgáfuafmæli. S...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Fengurinn í komu Rubios
📅 08.10.2026 👁️ 3
Þorsteinn Pálsson skrifar: Fengurinn í komu Rubios
Mynd Mikill fengur hefur jafnan verið í heimsóknum bandarískra r
Mikil rigning og all­hvass vindur - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Mikil rigning og all­hvass vindur - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands segir að mun minni rigning verði fyrir norðan og austan. Auk þess hlýni ívið í veðri. Það lægir se...
Mikil rigning sunnan og vestan til
📅 08.10.2026 👁️ 3
Mikil rigning sunnan og vestan til
Það er gott að taka fram skjólfötin í dag því útlit er fyrir mikla rigningu sunnan og vestan til í dag. Vindurinn fer líka hratt yfir. Hálkublettir er...
7% samdráttur í útflutningsverðmætum sjávarafurða
📅 08.10.2026 👁️ 3
7% samdráttur í útflutningsverðmætum sjávarafurða
Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam þrjátíu og þremur milljörðum króna í september. Það er samdráttur sem nemur 7% miðað við sama tíma í fyrra.Frá þe...
Margaret Hamilton er látin - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Margaret Hamilton er látin - Vísir
Hamilton stýrði teymi verkfræðinga sem þróaði hugbúnaðinn fyrir Apollo-leiðangra Bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA og með þeirri vinnu varð hu...
Tenerife prepares for major volcanic emergency exercise in the south of the island
📅 08.10.2026 👁️ 3
Tenerife prepares for major volcanic emergency exercise in the south of the island
The Tenerife Cabildo are preparing to stage a major volcanic emergency simulation and exercise in Guía de Isora on 22nd October, testing how authoriti...
Kappleikur milli framhaldsskólanema fór úr böndunum
📅 08.10.2026 👁️ 3
Kappleikur milli framhaldsskólanema fór úr böndunum
Einn fékk flösku í hausinn á kappleik milli tveggja framhaldsskóla í gær eða nótt og voru áverkar minniháttar.Í dagbók lögreglunnar segir að kappleiku...
Ráð­herra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðar­fjall - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Ráð­herra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðar­fjall - Vísir
Það var árið 1970 sem Bandaríkjaher yfirgaf herstöðina á Heiðarfjalli eftir þrettán ára rekstur. Þeir tóku hins vegar ekki allt með sér. Rusli frá her...
Most UK diplomats to leave East Jerusalem consulate, Israel says, as Miliband says 'vital services' to remain
📅 08.10.2026 👁️ 3
Most UK diplomats to leave East Jerusalem consulate, Israel says, as Miliband says 'vital services' to remain
Israel said in September it would act in response to UK sanctions on illegal Israeli settlements in the West Bank.
UK says 'vital services' to continue in East Jerusalem as Israel says most consulate diplomats leaving

Kjafts­högg, blys og hrákur á VÍ - MR - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Kjafts­högg, blys og hrákur á VÍ - MR - Vísir
Hin árlega VÍ - MR vika fer fram um þessar mundir. Á viðburði í gærkvöldi þurfti á einum tímapunkti að kalla út átta lögreglumenn á staðinn vegna ólát...
Third electrical failure in four days causes more water cuts across Lanzarote
📅 08.10.2026 👁️ 3
Third electrical failure in four days causes more water cuts across Lanzarote
Lanzarote's fragile water infrastructure has suffered another major setback after an electrical failure disrupted desalination and distribution system...
El Niño talinn ná hámarki í desember
📅 08.10.2026 👁️ 3
El Niño talinn ná hámarki í desember
Veður- og loftslagsstofnun Sameinuðu þjóðanna varar við því að áhrif El Niño eigi enn eftir að aukast þar til þau ná hámarki í desember. Talið er að v...
Tenerife Motor Circuit hit by Supreme Court setback as some works are suspended
📅 08.10.2026 👁️ 3
Tenerife Motor Circuit hit by Supreme Court setback as some works are suspended
The controversial Tenerife Motor Circuit in Granadilla de Abona has suffered another legal setback after the Supreme Court rejected an appeal by the T...
Works suspended at Tenerife Motor Circuit After Supreme Court ruling

Mum blamed for baby's death at Telford hospital calls for change in NHS
📅 08.10.2026 👁️ 3
Mum blamed for baby's death at Telford hospital calls for change in NHS
Neil and Katie Russell are working with the hospital where their daughter died on the scheme.
Premier League football shirts made by workers on £1 an hour
📅 08.10.2026 👁️ 2
Premier League football shirts made by workers on £1 an hour
A BBC Sport investigation traces official football shirt production to factories in Cambodia where workers are paid less than £1 an hour.
'Every day there is killing': Gazans face Israeli strikes despite ceasefire as peace deal stalls
📅 08.10.2026 👁️ 3
'Every day there is killing': Gazans face Israeli strikes despite ceasefire as peace deal stalls
Many Palestinians are still living in cramped tent cities, with the US plan to end the war largely stalled.
Syrian general accused of atrocities paid and protected by US and Lebanon, BBC finds
📅 08.10.2026 👁️ 4
Syrian general accused of atrocities paid and protected by US and Lebanon, BBC finds
Bassam al-Hassan, linked to reporter Austin Tice's abduction, is being sheltered in return for information.
US and Lebanon protecting wanted Syrian general, BBC finds
📅 08.10.2026 👁️ 2
US and Lebanon protecting wanted Syrian general, BBC finds
Bassam al-Hassan, linked to reporter Austin Tice's abduction, is being sheltered in return for information.
UK bluefin tuna comeback shows nature can recover, says WWF
📅 08.10.2026 👁️ 4
UK bluefin tuna comeback shows nature can recover, says WWF
The tuna is one of several wildlife recoveries highlighted in a major new report from WWF.
Margaret Hamilton, whose software helped land Apollo 11 on the moon, dies at 90
📅 08.10.2026 👁️ 3
Margaret Hamilton, whose software helped land Apollo 11 on the moon, dies at 90
Pioneering computer scientist led the development of the software for Nasa's Apollo mission and was awarded the Presidential Medal of Freedom.
'Come all the way' back to EU, French finance minister tells Britain
📅 08.10.2026 👁️ 4
'Come all the way' back to EU, French finance minister tells Britain
Roland Lescure tells the BBC that being in the bloc enables members to better address the challenges facing the world.
OpenAI birtir lausnir 700 stærðfræðidæma
📅 08.10.2026 👁️ 4
OpenAI birtir lausnir 700 stærðfræðidæma
Stærðfræðingar víða um heim eru í uppnámi eftir að tæknifyrirtækið OpenAI gaf út forprent að lausnum meira en sjö hundruð stærðfræðidæma sem gervigrei...