Veður- og loftslagsstofnun Sameinuðu þjóðanna varar við því að áhrif El Niño eigi enn eftir að aukast þar til þau ná hámarki í desember. Talið er að veðurfyrirbærið geti orðið það öflugasta í ár síðan 1950.
Veður- og loftslagsstofnun Sameinuðu þjóðanna segir að hitastig eigi líklega eftir að mælast yfir meðallagi víða um heim, úrkomumynstur breytist og líkur á þurrkum og flóðum aukist á ólíkum svæðum.
Spár gera ráð fyrir að yfirborðshitastig sjávar í Mið- og Austur-Kyrrahafi eigi eftir að ná methæð á næstu þremur mánuðum. Spárnar eru byggðar á samhljóðandi spám 13 helstu innlendu og alþjóðlegu veðurfræðistofnana. Þær gera einnig ráð fyrir að El Niño-áhrifa gæti fram í febrúar 2027.
Yfirborðshitastig sjávar hækkaði úr 1,6 gráðum yfir meðallagi í júní til 2,5 gráðum yfir meðallagi í ágúst. Talið er að yfirborðshitastig sjávar eigi eftir að hækka enn frekar, eða í 3,7 gráður yfir meðallagi á næstu þremur mánuðum.
Síðast þegar El Niño-veðurfyrirbærið gekk yfir leiddi það til þess að árið 2023 var annað heitasta ár frá því að mælingar hófust og árið 2024 mældist mesti hiti frá upphafi mælinga.
El Niño nær yfirleitt hámarki sínu milli nóvember og febrúar og mestu hitarnir mælast jafnan eftir það.