Það er gott að taka fram skjólfötin í dag því útlit er fyrir mikla rigningu sunnan og vestan til í dag. Vindurinn fer líka hratt yfir.
Hálkublettir eru sums staðar á vegum á Vestfjörðum og Norðausturlandi.
Suðaustan og austan 10-15, en heldur hvassara um landið suðvestanvert. Víða rigning, sums staðar talsverð úrkoma suðaustantil, en væta með köflum á Norðurlandi. Lægir suðvestanlands seinnipartinn og dregur úr vætu.
Breytileg átt 3-8 og úrkomulítið á morgun, en norðaustan 8-15 norðvestantil og rigning. Hiti 4 til 11 stig, mildast suðaustanlands.