Einar Bárðarson og Baldur Örn Gylfason fara að venju um víðan völl í nýjasta þætti Menn eins og við en ná illa að leyna vonbrigðum sínum yfir nýlegum lista Smartlands yfir hárprúðustu karlmenn landsins. Hvorugur þeirra rataði á listann sem þeim þykir með ólíkindum miðað við þá vinnu sem þeir hafa lagt í hárið undanfarin misseri.„Við áttum náttúrulega að vera á þessum lista. En látum það liggja á milli hluta,“ segir Einar áður en þeir velta fyrir sér hvort einhverjar annarlegar ástæður geti legið að baki útilokuninni.
Einar og Baldur hár-sárir yfir hárlista Smartlands