Stærðfræðingar víða um heim eru í uppnámi eftir að tæknifyrirtækið OpenAI gaf út forprent að lausnum meira en sjö hundruð stærðfræðidæma sem gervigreind þeirra, ChatGPT, hafði leyst.
Sum dæmanna voru sett fram fyrir meira en öld síðan. Frá þessu greinir tímaritið Nature.
Sumir stærðfræðingar hafa fagnað því að lausnir gætu hafa fundist á áður óleysanlegum dæmum en aðrir hafa lýst yfir áhyggjum af því að með aukinni notkun gervigreindar við útreikninga á flókinni stærðfræði verði lausnir ekki endilega gerðar opinberar.
Við það geti myndast gjá á milli rannsóknarstofa og stærðfræðinga sem einangrist frá framförum á sínu sérsviði.
Þess má geta að engin af frægustu óleystu gátum stærðfræðinnar var á meðal dæmanna sjö hundruð.
Þær voru skilgreindar af Clay-stærðfræðistofnuninni í Oxford og voru upphaflega sjö en ein þeirra var leyst af stærðfræðingi fyrir rúmum tuttugu árum og ein var leyst af gervigreind OpenAI í september.