Um þriggja metra gyllt stytta hefur verið afhjúpuð í einni byggingu Evrópuþingsins í Strassborg. Kallast hún „Appelsínugula plágan“ og er augljóslega af Donald Trump Bandaríkjaforseta.Breska blaðið The Telegraph greinir frá þessu.Konungur óréttlætisinsÚtlit styttunnar er vægast sagt ekki skjallandi. Trump er nakinn og gylltur, sitjandi á herðum annars manns. Heldur hann á golfkylfu í annarri hendinni en vog í hinni, sem er merki réttlætisins.Á stöpli styttunnar segir:Ég sit á baki manns.Hann er að sökkva undan byrði minni.
Stytta af Trump til sýnis í Evrópuþinginu – „Appelsínugula plágan“