Almar Guðmundsson, formaður stjórnar Sambandsins, mun setja þingið, en auk þess munu Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambandsins, Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra ávarpa þingið.
Á ráðstefnunni verður fjallað um stöðu og framtíðarhorfur sveitarfélaga, fjármál, efnahagsmál, menntamál, kjaramál, stafræn mál og innviði.
Hægt er að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan.
Dagskrá:
10:00 Setning og ávarp formanns
Almar Guðmundsson, formaður stjórnar Sambandsins
10:15 Sveitarfélög - grunnur að góðu samfélagi
Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambandsins
10:30 Staðan í efnahagsmálum
Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri
10:55 Ávarp fjármálaráðherra
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra
11:05 Ávarp innviðaráðherra
Eyjólfur Ármansson, innviðaráðherra
11:15 Pallborð
Ráðstefnustjóri: Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar
Umræðustjóri: Bogi Ágústsson, fv. fréttastjóri RUV