Það var árið 1970 sem Bandaríkjaher yfirgaf herstöðina á Heiðarfjalli eftir þrettán ára rekstur. Þeir tóku hins vegar ekki allt með sér. Rusli frá herstöðinni hafði einfaldlega verið sturtað fram af fjallinu og safnaðist það upp í hauga í hlíðinni ofan við íbúðarhúsið á jörðinni Eiði við Eiðisvatn.
Jörðin er í eigu tveggja bræðrahópa, alls fimm einstaklinga. Þeirra á meðal er Vilhjálmur Þórðarson, fyrrverandi flugstjóri. Hann segir landeigendur hafa í hálfa öld staðið í baráttu fyrir því að hreinsað yrði til eftir herinn.
„Já, þú sérð það. Síðan 1976,“ segir Vilhjálmur en hér í sjónvarpsviðtali Sýnar lýsir hann slag landeigendanna:
„Og nú allt í einu svara þeir ekki bréfum frá okkur; hið opinbera eða þessar stofnanir sem Alþingi ákvað að tæki málið að sér og sæi um mat á því hvað það kostaði að hreinsa þetta.“
Vilhjálmur segir að þarna séu meðal annars efni sem fylgdu filmuupptökum á því sem birtist á ratsjárskjánum.
„Framköllunarvökvi, til dæmis frá Kodak. Þarna eru umbúðir sem við sjáum að blása upp þarna. Þarna eru olíutunnur og svo voru sennilega grafnir þarna spennar. Fullir af PCB. Og allir þessir rafgeymar.“
Vilhjálmur segir landeigendur fyrst hafa fengið kanadíska aðila til að kanna mengunina. Þeir hafi rannsakað og annast hreinsun á yfir fjörutíu ratsjárstöðvum í Kanada. Kanadamennirnir hafi sagt Heiðarfjallið með því versta.
„Sögðu að þetta væri ein af verstu stöðvunum sem þeir hefðu skoðað af þessum ratsjárstöðvum sem þeir hafa séð um að hreinsa eftir Ameríkana.“
Hann segir ríkið síðan hafa fengið norskt fyrirtæki til að rannsaka mengunina.
„Þar kom fram ívið verri útkoma heldur en frá Kanadamönnunum. Því að þeir eru líka búnir að finna þarna geislavirk efni þarna uppi.“
Vilhjálmur segir landeigendur hafa reynt málsókn en málinu hafi verið vísað frá og það sagt fyrnt.
„Það er ekki fyrnt, þessir haugar eru þarna ennþá! Málið er ekkert fyrnt sko!“
-Þannig að þið ætlið að halda áfram?
„Já, það er ekki um annað að gera fyrir okkur.
Þetta kemur í veg fyrir það, sem við ætluðum að gera hér í upphafi, að vera með fiskeldi.“
„Við erum hætt að nota vatnið hérna því það er komið í ljós að í læknum hérna og lindinni er komið fram eiturefni. Þannig að ég verð að flytja allt vatn innan af Þórshöfn í brúsum til að hafa við húsið og drykkjarvatn.
Svo er ríkið búið að setja upp hérna skilti um að það sé hættulegt að vera þarna á svæðinu. En svo aftur sveitarstjórnin er með auglýsingu hérna hinum megin um að hvetja fólk til að fara upp á fjall og skoða þetta,“ segir Vilhjálmur.
Viðræður við ráðamenn í gegnum áratugi segir hann litlu hafa skilað.
„Og síðan er röðin af þessum ráðherrum sem við höfum talað við en ekkert kemur út úr því. Svo töluðum við við utanríkisráðherra, eins og Halldór Ásgrímsson. En hann varð bara reiður þegar við vorum að tala um þetta mál og lét henda okkur út af skrifstofunni fyrir rest,“ segir Vilhjálmur og hlær.
Málið hefur í gegnum árin verið af og til rætt á Alþingi, síðast í fyrradag í umræðum um störf þingsins, þar sem þingmaður lýsti Heiðarfjalli sem einu alvarlegasta mengunarmáli Íslandssögunnar.