Maricarmen Abascal, spænsk kona sem var borin út af heimili sínu í Madrid nýverið, er látin 87 ára að aldri.
Abascal komst í heimsfréttirnar þegar hún var borin út úr leiguíbúð sem hún hafði búið í, í sjö áratugi. Spænskt fasteignafélag sem á íbúðina sem hún leigði hækkaði leiguna umtalsvert með þeim afleiðingum að hún gat ekki greitt leiguna og því var hún borin út 23. september.
Víða er mikil eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði á Spáni og þegar Abascal var borin út fóru af stað mikil mótmæli í Madrid og í fleiri borgum, henni til stuðnings og einnig til að varpa ljósi á slæmt húsnæðisástand víða í landinu. Abascal fékk að snúa aftur í íbúð sína viku síðar.
Abascal minnst í Madrid
Leigjendasamtök í Madrid greindu frá andláti hennar í gær en ekki var greint frá dánarorsök hennar. Margir kveiktu á kertum og minntust Abascal með mínútuþögn á Puerta del Sol-torgi í Madrid í miðborg Madrid í gær þar sem mótmælendur hafa haldið til síðustu 12 sólarhringana til að krefjast húsnæðis á viðráðanlegu verði.
Verkalýðsfélög á Spáni hafa boðað til allsherjarverkfalls 11. nóvember til að krefjast umbóta í húnæðismálum.
Ríkisstjórn Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, lagði fram frumvarp um breytingar á lögum um húsnæðismál á spænska þinginu sem fékk nafnið Maricearmen-frumvarpið, en það var fellt í þinginu. Sanchez boðaði svo til kosninga á mánudag og verða kosningar á Spáni 29. nóvember.