Hin árlega VÍ - MR vika fer fram um þessar mundir. Á viðburði í gærkvöldi þurfti á einum tímapunkti að kalla út átta lögreglumenn á staðinn vegna óláta meðal nemendanna.
Blysum var kastað sem lentu svo í nærstöddum, einhverjir fengu kjaftshögg og var skyrpt á aðra. Þeir sem sóttu leikana voru margir ölvaðir en enginn var vistaður í fangageymslu vegna þessa. Ekki lágu fyrir formlegar kærur þegar dagbók lögreglu var send út klukkan fimm í morgun.
Lögreglan hafði einnig í öðru að snúast. Einn var handtekinn vegna rannsóknar á eignaspjöllum, sölu fíkniefna, vopnalagabroti og peningaþvætti. Þá barst tilkynning um eld í sameign fjölbýlishúss sem kviknaði út frá hlaupahjóli.