„Hvers vegna eru Bandaríkjamenn feitir?“ spurði blaðamaðurinn Michael Pollan í metsölubókinni The Omnivore’s Dilemma sem í ár á 20 ára útgáfuafmæli. Samkvæmt Pollan lá svarið ekki aðeins í stórum skammtastærðum og lítilli hreyfingu heldur einnig í landbúnaðarstefnu Richards Nixon.
Að sögn Pollan leiddi stuðningur ríkisins við maísrækt til gífurlegrar framleiðsluaukningar sem var ekki í nokkru samræmi við eftirspurn.
Offramboð varð til þess að verðið á maís féll langt niður fyrir framleiðsluverð. Ríkið bætti bændum upp tapið svo að enginn hvati var til að draga úr ræktun.
Heilu fjöllin af maís hlóðust upp.
Hvað var hægt að gera við allan þennan maís?
Niðurgreiddu eigin þyngdaraukningu
Matvælaiðnaðurinn dó ekki ráðalaus og var fljótur að færa sér í nyt ódýrt hráefnið. Maísinn var meðal annars unninn í kornsíróp og maíssterkju sem nota mátti sem sætuefni eða næringarsnautt fylliefni í matvæli á borð við brauð, jógúrt, morgunkorn og gosdrykki.
Þegar bók Pollans kom út reiknaðist honum til að meira en fjórðungur alls varnings stórmarkaða innihéldi unninn maís.
Bæði óafvitandi og óvart niðurgreiddu bandarískir skattgreiðendur þróun í matvælaframleiðslu sem leiddi til þyngdaraukningar og heilsuleysis þjóðarinnar.
Auknum umsvifum slegið á frest
Skúli Mogensen, stofnandi sjóbaðanna í Hvammsvík, sagðist í síðustu viku ætla að slá á frest áformum um aukin umsvif fyrirtækisins. Kvað hann ástæðuna fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent, sem er hið almenna skatthlutfall virðisaukaskatts af verði vöru og þjónustu hér á landi.
„Þetta er það mikil hækkun og kemur með svo skömmum fyrirvara að hún mun óhjákvæmilega setja strik í reikninginn,“ lýsti Skúli yfir í Morgunblaðinu, en á teikniborðinu höfðu að hans sögn verið „boutique“-hótel, veitingastaður og fleiri laugar.
Á skilið stuðning og velvild
Íslendingar eiga ferðaþjónustunni margt að þakka. Ekki aðeins reyndist greinin þjóðinni lífsbjörg í kjölfar bankahrunsins heldur hefur straumur ferðafólks hingað til lands glætt borg og bæi lífi. Þótt kvarta megi undan örtröð á annatímum og fjölsóttum áfangastöðum hefur þeim stöðum fjölgað til muna, sem hægt er að heimsækja og kvarta yfir örtröðinni.
Ferðaþjónustan á stuðning og velvild landsmanna skilið. Skattaívilnanir á hún hins vegar ekki sjálfkrafa tilkall til.
Er raunverulegur fótur fyrir rekstrinum?
Stuðningur bandarískra stjórnvalda við maísrækt leiddi til framleiðsluaukningar sem var ekki í nokkru samræmi við eftirspurn. Að auki stuðlaði ívilnunin að útbreiðslu hins illræmda kornsíróps og fylliefna sem þenja út gjörunnin matvæli og sögð eru ógn við almenna heilsu á Vesturlöndum.
Skúli Mogensen gefur í skyn að frekari uppbygging fyrirtækis hans svari ekki kostnaði nema hann njóti áframhaldandi skattaívilnunar af hálfu ríkisins. Gildir þá einu að stór hluti starfseminnar – hótelrekstur og veitingastaðir – muni áfram bera 11 prósenta virðisaukastatt.
Þá er vert að spyrja: Sé viðskiptaáætlun Skúla Mogensen raunverulega svo viðkvæm að hún þoli ekki breytingu á virðisaukaskatti, er yfir höfuð fótur fyrir rekstrinum?
Baðlón spretta nú upp um allar koppagrundir. Er um að ræða sjálfbæran rekstur eða kornsíróp ferðaþjónustunnar?