Átján ára maður hefur verið handtekinn í Minnesota í Bandaríkjunum, grunaður um að undirbúa fjöldamorð í verslunarmiðstöðinni Mall of America í nafni hryðjuverkasamtakanna ISIS. Samkvæmt gögnum ákæruvaldsins ætlaði hann að drepa 30 til 60 manns á menningarhátíð síðar í þessum mánuði.
Maðurinn heitir Sheikhdoon Abdullahi Mohamud og er bandarískur ríkisborgari, fæddur í Bandaríkjunum og af sómölskum uppruna. Hann var handtekinn 6. október og leiddur fyrir dómara daginn eftir. Honum er gefið að sök að hafa tekið við skotvopni og skotfærum í þeim tilgangi að fremja hryðjuverk.
Hét ISIS hollustu á myndbandi
Samkvæmt bandaríska dómsmálaráðuneytinu sendi Mohamud myndband af sjálfum sér þar sem hann hét ISIS hollustu. Hann ræddi einnig um að fá aðra til liðs við sig í árásinni.
Rannsókn FBI hófst í desember 2024. Í samskiptum við heimildarmann lögreglunnar lýsti Mohamud áhuga á að fara til Sómalíu og berjast fyrir hryðjuverkasamtök. Þegar hann taldi sig ekki hafa efni á ferðinni sagðist hann ætla að ráðast á fólk í Minnesota til stuðnings ISIS.
Vildi drepa fólk sem væri ekki múslimar
Í júlí ræddi hann um árás á Mall of America vegna þess að hann taldi verslunarmiðstöðina vera í eigu gyðinga. Hann sagðist vilja drepa 30 til 60 manns svo fólk hætti að fara þangað.
Mohamud valdi 24. október sem árásardag og sendi heimildarmanninum tengil á menningarhátíð hmong fólks í verslunarmiðstöðinni. Samkvæmt málsgögnunum taldi hann að þar yrði fjöldi fólks sem væri ekki múslimar.
FBI seldi honum óvirkan riffil
Starfsmaður FBI, sem þóttist vera liðsmaður ISIS, seldi Mohamud AK-47-riffil, fjögur 30 skota skotfærahylki og um 200 skot fyrir um 600 bandaríkjadali. FBI hafði gert riffilinn óvirkan fyrir viðskiptin og handtók hann skömmu eftir að hann tók við vopninu og skotfærunum.
Við kaupin ítrekaði Mohamud áform sín um að nota vopnið til að skjóta fólk í Mall of America, að því er fram kemur í málsgögnunum.