„Fresturinn okkar til að slíta kjarasamningum rennur út klukkan fjögur í dag og við höfum verið algjörlega skýr í því að ef við fáum ekki lausnamiðað samtal við Samtök atvinnulífsins þá neyðumst við til að slíta samningum, og það lausnamiðaða samtal hefur ekki átt sér stað,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Halla: „Sjónin ætti að beinast að Samtökum atvinnulífsins sem eru að hleypa öllu í upplausn“