Í það minnsta 30 voru drepnir þegar Rússar réðust á tvær rútur í Kramatorsk nærri víglínunni í austanverðri Úkraínu.
Saksóknari í héraðinu greindi frá mannfallinu. Fyrstu fréttir hermdu að 12 hefðu verið drepnir og að 14 hefðu særst í árás á rútu. Nú er ljóst að mannfallið varð mun meira. 30 voru drepnir og voru þeir í tveimur rútum. 18 særðust.
Þessu til viðbótar voru þrír drepnir í árás Rússa á úkraínsku höfuðborgina Kyiv, að sögn borgarstjóra hennar.
Rússar greindu frá því í dag að drónaárás hefði verið gerð á gagnaver rússneska tæknifyrirtækisins Yandex. Eldur kviknaði í húsinu. Þetta er fyrsta árásin á slíkt skotmark síðan stríðið hófst.
Stjórnvöld í Suður-Kóreu greindu frá því í dag að þau hyggist kalla sendiherra sinn í Úkraínu heim frá Kiyv. Þetta gera þau vegna mikillar og vaxandi spennu í samskiptum ríkjanna vegna uppljóstrana Úkraínumanna um norðurkóreska stríðsfanga sem voru fluttir til Suður-Kóreu.
Utanríkisráðuneyti Suður-Kóreu sagði að þrátt fyrir að sendiherrann væri kallaður heim væri það von þeirra að deilur ríkjanna leystust á vinsamlegan hátt.
Fréttin var uppfærð með upplýsingum um árásir á Kyiv og gagnaver og aftur með upplýsingum um að mun fleiri hefðu verið drepnir í Kramatorsk en fyrst var talið.