Hakakross hafði verið rispaður á hlið bíls við Flyðrugranda er eigandi bílsins kom að honum í gær. Kristján Ingi Einarsson segir aðkomuna hafa verið ljóta, einkum í ljósi þess að hann ætlaði með bílinn á bílasölu í dag. Hann neyðist í staðinn til þess að fara með hann á verkstæði.
Kristján segist hafa tilkynnt skemmdarverkið til lögreglu og tryggingarfélags síns. Þá hafi hann birt færslu í hópi fyrir Vesturbæinga um atvikið. Viðbrögðin hafi ekki staðið á sér og þó nokkrir hafi lýst svipaðri upplifun.
„Þetta virðist vera eins og faraldur,“ segir Kristján.
Mögulegt „tik-tok trend“
Hann segir svo virðast sem skemmdarvargurinn, eða vargarnir, hafi gefið sér góðan tíma í verkið og bæði rispað hurð bílsins og húddið.
Annar Vesturbæingur hafi nefnt að þetta sé líklega svokallað „tik-tok trend“ þar sem krakkar geri sér leik að því að rispa bíla og taka það upp. Kristján segist þó ekkert hafa fyrir sér í því. Atvikið hafi gerst við bílskúr við heimili hans. Svæðið þar sem bíllinn stóð sé vel lýst en engin öryggismyndavél beinist að því.
Kristján kveðst spyrja sig hver hugsanagangur fólks sé sem gerir svona. Það hafi verið afar óþægilegt að þurfa að aka bílnum með þetta tákn á hliðinni í morgun.
Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn staðfestir að lögreglu hafi borist minnst þrjár tilkynningar um rispur á bílum í Vesturbæ. Hann segir tilkynningarnar til skoðunar hjá lögreglu sem sé enn að átta sig á umfangi atvikana.