Sænska akademían greindi frá þessu á fréttamannafundi sem hófst klukkan 11, en Nóbelsverðlaunin verða formlega afhent í Stokkhólmi þann 10. desember á ártíð Alfreðs Nobel.
Anne Carson er fædd í Toronto í Kanada 21. júní 1950 og ólst upp í ýmsum kanadískum smábæjum. Hún menntaði sig í fornfræði og er með doktorsgráðu í þeim fræðum frá Toronto-háskóla. Carson hefur skrifað nítján skáldverk, þýtt sjö forngrísk verk og vísar mikið í goðafræði og forngrískar bókmenntir í skrifum sínum. Hún er stödd á Íslandi í dag og komu verðlaunin henni mjög á óvart.
Ungverski rithöfundurinn László Krasznahorkai hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum á síðasta ári en hann er þekktur fyrir krefjandi póstmódernískar skáldsögur sínar, þar af er þeirra þekktust Satantango. Árið áður hlaut suður-kóreski rithöfundurinn Han Kang verðlaunin.
Fréttin verður uppfærð.