Nemendur í Kópavogi náðu árangri yfir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum PISA-rannsóknarinnar í fyrra sem kynnt var í sumar, það er í vísindum, stærðfræðilæsi og lesskilningi.
Þetta er hluti af því sem fram kemur í greiningu mennta- og barnamálaráðuneytisins á frammistöðu íslenskra nemenda eftir sjö stærstu sveitarfélögum landsins.
Nemendur á Akureyri voru yfir landsmeðaltali í vísindum og stærðfræðilæsi og nemendur í Garðabæ í stærðfræðilæsi.
Nemendur í Reykjanesbæ voru undir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum og nemendur í Hafnarfirði voru undir landsmeðaltali í vísindum og lesskilningi.