Forsenduákvæði kjarasamninganna brast í ágúst eftir að verðbólgan mældist 5,6 prósent. Þeir sem komu að samningunum fengu þá heimild til klukkan fjögur í dag til að segja upp kjarasamningunum.
Hvort náist að semja fyrir það er óljóst en Halla Gunnarsdóttir formaður VR sagði í viðtali við Vísi í morgun að Samtök atvinnulífsins hefðu ekki „fært sig eina litla tommu“ til að koma til móts við VR, Fagfélögin og LÍV. Breiðfylking stéttarfélaga hefur þegar samið við SA um framlengingu samninga. Slíti VR samningum geta opinberu stéttarfélögin gert slíkt hið sama í kjölfarið.
Fylgst verður með þróun mála í vaktinni hér að neðan: