Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna segir í samtali við Vísi að starfsmenn Veitna séu í dag að endurstilla kerfið og því megi fólk búast við því að sjá ljósastaurana blikka.
„Þeir eru að kveikja og slökkva á þeim til að endurstilla kerfið,“ segir hún.
Greint var frá biluninni í gær og fengust ábendingar úr Breiðholti, Ártúnsbrekku og við Vesturlandsveg um ljóslausa staura. Silja segir að bilunin hafi verið víðtækari og náð til Vesturbæjar í Reykjavík líka.
„Við viljum alls ekki að þetta gerist og þetta er mjög óþægilegt og getur skapað hættu. Þess vegna verður þessu handstýrt,“ segir hún að lokum.