Um 50 kjarasamningar eru undir hjá fagfélögunum og þeim verður öllum sagt upp að óbreyttu.
VR segir upp þremur kjarasamningum, það er samningi við Samtök atvinnulífsins, við Félag atvinnurekenda og samningi leiðsögufólks.
VR, Fagfélögin og LÍV funda stíft í húsnæði Fagfélaganna við Stórhöfða. Halla Gunnarsdóttir formaður VR steig út af fundi í örskamma stund og ræddi við fréttastofu.
Hún segir stöðuna enn þunga og í raun óbreytta. Allt stefni í að kjarasamningum verði sagt upp.
Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður er á staðnum og segir að mikil vinna standi yfir við að prenta út og undirrita uppsögn hvers og eins kjarasamnings.
Gunnar Sigurðsson, formaður VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna, segist ekki vera bjartsýnn á að samningar haldi.
Fátt geti komið í veg fyrir að samningum verði sagt upp eins og staðan er núna.
Fulltrúar VR, Fagfélaganna og LÍV segjast bíða eftir símtali frá Bjarna Benediktssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins. Félögin funda í húsnæði Fagfélaganna á Stórhöfða og má segja að loftið sé spennuþrungið.
Að sögn forsvarsmanna félaganna voru Samtök atvinnulífsins að ljúka fundi. Þeir vænti þess að stjórn SA hafi brýnt fyrir forystu samtakanna að ná samtali við verkalýðshreyfinguna.
Fjármálaráðstefna Sambands íslenskra sveitarfélaga er í fullum gangi og þar komu kjarasamningar við sögu – þó ekki þeir sem hugsanlega verður sagt upp í dag.
Almar Guðmundsson formaður sambandsins og Arnar Þór Sævarsson framkvæmdastjóri þess fögnuðu báðir ákvörðun Reykjavíkurborgar um að leggja niður sína eigin samninganefnd og fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga að sjá um samninga við starfsmenn Reykjavíkurborgar.
Reykjavíkurborg hefur verið með eigin samninganefnd í á fjórða áratug. Nú færast störf hennar til samninganefndar sveitarfélaga.
Arnar Þór sagði að þetta væri ánægjulegt þar sem nú yrði samið fyrir öll sveitarfélögin saman og að þetta hjálpaði líka til við að halda utan um upplýsingar um kjaramál.
Uppsagnarákvæði kjarasamninga hjá opinberum félögum virkjast þegar kjarasamningum á almennum markaði er sagt upp. Þá er hvorum hlutaðeigandi, það er vinnuveitenda og stéttarfélagi heimilt að segja upp kjarasamningi.
Þau ákvæði virkjast að öllum líkindum síðar í dag þegar VR, Fagfélögin og LÍV segja upp samningum við Samtök atvinnulífsins. Slíkt ákvæði virkjast til að mynda hjá Sameyki, BHM og Kennarasambandinu.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB, sem Sameyki er hluti af var gestur á Morgunvaktinni á Rás 1 í gærmorgun. Hún sagði það í höndum hvers og eins aðildarfélags að taka ákvörðun um að segja upp samningum.
Sjálf teldi hún mögulega tilefni til að rifta kjarasamningum vegna áforma fjármálaráðherra um að afnema áminningarskyldu opinberra starfsmanna. Þá væri hægt að semja um áminningarskyldu í kjaraviðræðum.
Jakob Tryggvason formaður Rafiðnaðarsambandsins sem er stærsta félagið innan sambands Fagfélaganna sagði í samtali við fréttastofu fyrir fund Fagfélaganna og VR að aðildarfélögin hefðu veitt heimild til að segja upp kjarasamningunum.
Hann sagði að félagsmenn stéttarfélaganna sem tilheyra Fagfélögunum þæðu laun samkvæmt fjölmörgum kjarasamningum, 20 þeirra eru bundnir af forsenduákvæðinu.
Halla Gunnarsdóttir formaður VR var til viðtals í Morgunútvarpinu á Rás 2. Hún segir engar nýjar vendingar hafa orðið í samtali félagsins við Samtök atvinnulífsins og að enn standi til að slíta kjarasamningum.
VR hafi skynjað lítinn samningsvilja þrátt fyrir fjölmargar tillögur VR. Spurð hvers vegna hún telji að tillögum þeirra hafi verið hafnað segir hún samtalið hafa verið afar einhliða.
„Eitt er að hafna tillögum og annað er að koma með einhverjar gagntillögur. Við erum búin að vera dálítið einmana í þessu samtali“
Hún ítrekaði að margir félagsmenn hefðu ekki fengið neitt umfram kjarasamningsbundnar hækkanir og að þær hefðu ekki haldið í við verðbólgu.
„Ég veit ekki til hvers maður ætti að vera með stéttarfélög ef þau semja um launalækkanir fyrir sitt fólk ár eftir ár.“
Við hefjum fréttavakt þar sem fylgst verður með gangi mála í kjaramálum í dag. Ég heiti Iðunn Andrésdóttir og mun færa ykkur fréttir eftir því sem þær berast.
VR hyggst rifta kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins í dag. Fundur Fagfélaganna hófst fyrir skemmstu í húsnæði þeirra við Stórhöfða í Reykjavík. Fulltrúar VR og LÍV sitja fundinn.