Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að skemmdarvargi eða vörgum sem rispuðu þrjá bíla í Vesturbæ Reykjavíkur. Greint hefur verið frá því að hakakross var rispaður á bílhurð eins bílsins.„Bifreiðarnar voru kyrrstæðar í bifreiðastæðum við Flyðrugranda, Hagamel og Keilugranda þegar verknaðurinn átti sér stað. Þar var á ferðinni skemmdarvargur (eða skemmdarvargar) sem rispaði allar bifreiðarnar með lykli eða einhvers konar áhaldi - svo mikið tjón hlaust af,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
Leita að skemmdarvörgunum sem rispuðu þrjá bíla – Hakakross á bílhurðina