Áföll á undanförnum árum
Veruleg áföll hafa gengið yfir hagkerfi heimsins á síðustu árum, heimsfaraldur, innrásin í Úkraínu, verndartollar Trumps Bandaríkjaforseta og árás Bandaríkjanna og Ísraels á Íran en þetta hefur ekki leitt til samdráttar í efnahagslífi heimsins heldur hefur verið hagvöxtur þó að hann sé misjafn eftir heimshlutum.
Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu efnahagsmála heimsins. Gylfi segir að vaxtahækkanir víða að undanförnu séu ekki góðar fréttir en hagkerfi heimsins hafi sýnt mikla seiglu undanfarin ár. Það sé ótrúlegt hvað mikið geti gengið á án þess að við lendum í óviðráðanlegri krísu. Jafnvel þegar kreppur skelli á eins og eftir hrunið 2008 hafi flest hagkerfi verið fljót að jafna sig.
Mikil skuldasöfnun ríkissjóðs Bandaríkjanna
Sumir hagfræðingar hafa lýst áhyggjum af fjárlagahalla og skuldasöfnun ríkissjóðs í Bandaríkjunum. Gylfi bendir á að hagvaxtartölur hafi ekki verið neitt hræðilegar og betri en margir óttuðust þegar tollar voru hækkaðir. Það virðist ekki hafa valdið eins miklum skaða og búist var við, alla vega ekki til skamms tíma, þannig að bandaríska hagkerfið sé tiltölulega sprækt. Ríkissjóður vestra hafi áratugum saman verið rekinn með miklum halla og það sé líka mikill halli á utanríkisviðskiptum. Ríkissjóður þurfi því að taka sífellt meira fé að láni og Bandaríkin þurfi sem heild að laða til sín fjármagn og þeim hafi tekist það.
Vaxtahækkanir eru ekki góðar fréttir
Gylfi segir að vaxtahækkanir séu ekki góðar fréttir. Einhvers staðar þurfi að herða að sem komi niður á einhverjum hópum en hann spái ekki heimskreppu. Svo sé greinilegt að fjárfestar séu orðnir skelkaðir og það lýsi sér í því að þeir séu tregari til að kaupa bandarísk ríkisskuldabréf og gera hærri ávöxtunarkröfu.