Flávio Bolsonaro, öldungardeildarþingmaður og sonur Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta, fékk flest atkvæði í fyrri umferð forsetakosninganna í Brasilíu á sunnudaginn, rúm 47 prósent gegn 45 prósentum Luiz Inácio Lula da Silva, sitjandi forseta og leiðtoga Verkamannaflokksins. Þá unnu hægri öflin stórsigra í þingkosningunum sem haldnar voru samhliða forsetakosningunum.
Í fréttaskýringaþættinum Þetta helst var rætt við Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands sem þekkir sögu og samfélag Rómönsku Ameríku vel, um niðurstöðurnar, hægri sveifluna í álfunni og áhrif á alþjóðaviðskipti.
Þreyta og skautun áberandi
Hólmfríður segir að kosningabaráttan hafi mótast af ólíkum áherslum, en líka af áberandi þreytu meðal kjósenda sem upplifi að verið sé að ræða sömu gömlu málin. Flavio Bolsonaro taki upp stefnu föður síns og Lula fari í sama far og þegar hann var verkalýðsleiðtogi.
Lula er áttræður og var forseti 2003 til 2010 og aftur frá 2023. Hann var ákærður fyrir spillingu og sat í fangelsi 2018 til 2019. Flávio Bolsonaro er 45 ára lögfræðingur og hefur setið á þingi frá 2019. Faðir hans var dæmdur í 27 ára fangelsi fyrir tilraun til valdaráns. Sonurinn hefur virst hófstilltari en faðirinn og reynir að höfða meira til miðjunnar, segir Hólmfríður.
Umræða um efnahagsmál hefur verið fyrirferðamikil í aðdraganda kosninganna. Hólmfríður segir hægri vænginn kenna stjórn Lula um hækkandi verðlag en vinstri menn Bandaríkjunum, sem hafi tvisvar lagt tolla á Brasilíu nýverið. Atvinnuástandið hafi þó verið gott og Lula lagt áherslu á það. Þá veltir hún fyrir sér hvort Trump muni nýta tollana í kosningunum, til að mynda með því að segjast ætla að fella þá niður ef Bolsonaro vinnur. „Trump hefur notað tromp í þessum kosningum í nágrannalöndunum undanfarið,“ segir hún.
Hægri sveifla í álfunni
Niðurstöður kosninganna eru í takt við hægri sveiflu í álfunni, og bendir Hólmfríður á Paragvæ, Bólivíu, Perú, Síle, Argentínu og nú síðast Kólumbíu í því samhengi. Efnahagsástandið skýri hana að hluta, en há glæpatíðni hafi líka aukið vægi öryggis- og löggæslumála í hugum kjósenda og víða sé vilji til að herða innflytjendalöggjöfina.
„Stjórnmálin eru eins og pendúll. Hann færist og sveiflast frá einum ásnum til annars og hann virðist í Rómönsku Ameríku mjög sjaldan stoppa einhvers staðar í miðjunni,“ segir Hólmfríður. Hún telur að sveiflan geti breytt viðskiptaumhverfinu. Í Argentínu hafi útflutningur til Bandaríkjanna, meðal annars á nautakjöti, aukist. Hún efast þó um að Brasilía slíti samstarfi við Rússland, Indland og önnur BRICS-ríki, því landið lifi á aðgangi að mörkuðum og vilji hafa fleiri að til að standa sterkt gagnvart Evrópu og Bandaríkjunum. Þá sé Mercosur-bandalagið ekki í hættu en spurning hvernig Bolsonaro nálgist samskipti við Kína.
Árið 2014 var vilji til að auka viðskiptaleg tengsl Íslands og Brasilíu og stigin voru skref í þá átt. Hólmfríður telur að niðurstaðan hafi ekki mikil áhrif á Íslendinga, það skipti litlu máli hvernig pólitískir vindar blási í Brasilíu. Viðskipti landanna séu lítil og Íslendingar flytji meira inn frá Brasilíu en þangað. Þar megi helst nefna hráefni sem tengist áliðnaðinum.
„Það verður áfram. Svo er þetta kaffi og sykur. Við erum ekki það mörg að við skiptum stóru máli fyrir Brasilíu hvað það varðar. Það mun halda áfram. Við drekkum kaffi og borðum sykur,“ segir Hólmfríður.
Nánar er rætt við Hólmfríði í fréttaskýringaþættinum Þetta helst.