Fangelsismálastofnun fer þess á leit við fjárlaganefnd Alþingis að fjárveitingar stofnunarinnar verði auknar um 280 milljónir á næsta ári frá því sem ráð er fyrir gert í fjárlagafrumvarpinu. Þetta segir stofnunin nauðsynlegt til að bregðast við auknum verkefnum sem fylgja því að fangelsisdómar eru orðnir fleiri og þyngri en áður.
Fangelsismálastofnun skilaði inn umsögn um fjárlagafrumvarp næsta árs. Þar segir að fjöldi gæsluvarðhaldsfanga hafi náð nýjum hæðum og að dag hvern sé að meðaltali á sjöunda tug einstaklinga í gæsluvarðhaldi. Það þýðir að aðeins rúmlega 100 pláss eru eftir fyrir þá fanga sem eiga að afplána refsidóma.
Nú bíða tæplega 700 manns eftir því að vera boðaðir til afplánunar að því er fram kemur í umsögninni. Þar segir jafnframt að fyrirséð sé að einhver hluti refsinganna fyrnist ef ekkert verður að gert.
Nær hvert rými í fangelsum landsins er fullnýtt og hefur raunnýting verið á bilinu 98-100% en í rekstraráætlun er gert ráð fyrir að það hlutfall sé 80%. Þar er miðað við að full nýting út frá faglegu sjónarhorni og öryggissjónarmiðum sé 100% í opnum fangelsum, 90% á Litla-Hrauni og 80% á Hólmsheiði.
Um 70% fanga eru erlendir ríkisborgarar og hefur það meðal annars kallað á aukin umsvif vegna túlkaþjónustu og erlendra samskipta. Þá hefur þeim föngum fjölgað sem glíma við sértækan vanda og þá þarf oft aukna mönnun sem hefur verið leyst með því að kalla fangaverði út.