Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni gegn 10 ára gamalli stúlku, en brotin áttu sér stað á samskiptaforritinu Snapchat.Maðurinn er sakaður um að hafa viðhaft kynferðislegt tal við stúlkuna á Snapchat og ítrekað sent henni kynferðislegar myndir og myndbönd. Eins mun hann hafa beðið stúlkuna um myndir og myndbönd af líkama hennar og kynfærum. Meint brot áttu sér stað á tímabilinu frá og með 5. mars 2023 til og með 8. mars 2023.
Sendi 10 ára stúlku kynferðisleg skilaboð og bað um myndir af kynfærum hennar