Forsvarsmenn fyrirtækisins Subsea7, sem sá um að leggja lögn milli lands og Vestmannaeyja í sumar, hafa viðurkennt að tjón á lögninni megi rekja til mistaka við lagninguna. Þetta kemur fram á vef Vestmannaeyjabæjar.
Fjallað var um tjónið á vatnslögninni á tveimur fundum í þessari viku. Á mánudag sat stýrihópur um vatnslagnir fund með forsvarsmönnum Subsea7, fulltrúa Verkís og lögmanni sveitarfélagsins. Næsta dag ræddi bæjarráð tjónið á lögninni.
Í færslu á vef Vestmannaeyjabæjar segir að í skýrslu frá Subsea7 sé að finna viðurkenningu á því að tjónið megi rekja til mistaka við framkvæmd útlagningarinnar. Þar komi fram að ferlar um borð hafi ekki tryggt að útlagningin héldist innan öryggismarka.
Þar segir jafnframt að bærinn hafi verið með bestu mögulegu tryggingar og að næstu vikur fari í að meta tjónið og koma verkefninu í þann farveg að koma nýrri lögn milli lands og Eyja.
Fyrri vatnslögn skemmdist þegar skip missti út akkeri og olli tjóni á lögninni fyrir þremur árum. Vatnslögnin sem var lögð í sumar átti að koma í stað hennar en skemmdist þegar hún var lögð.