Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, segir ömurlegt að kappleikur milli Verzlunarskólans og Menntaskólans í Reykjavík hafi farið úr böndunum í gær.
„Þetta voru leiðindafréttir í morgun og ömurlegt að svona hegðun setji svip sinn á viðburð þar sem hundruð nemenda hegðuðu sér vel.“
Kjaftshögg, hráki og ölvun eru á meðal þeirra orða sem notuð eru í dagbók lögreglu á kappleik Verzlunarskólans og Menntaskólans í Reykjavík í gær. Skólarnir öttu kappi í fótboltaleik sem fór fram á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi í gær.
Leikurinn var hluti af árlegri VÍ – MR-viku skólanna þar sem keppt er í ýmsu á milli skólanna.
Mikið um ölvun á viðburðinum
Sólveig og Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Versló, hafa átt í samskiptum í dag. Þær vinna nú að því að afla upplýsinga um hvað gerðist á vellinum í gær og skoða mögulegar afleiðingar fyrir þann hóp sem átti í hlut. Í dagbók lögreglu segir að mikið hafi verið um ölvun á viðburðinum.
„Það er eitthvað sem við höfðum áhyggjur af fyrirfram en á staðnum voru samfélagslögreglur, starfsfólk skólanna og Gróttu.“
Mikill hiti var á leiknum. Einn fékk flösku í höfuðið og blys sem var kastað hæfðu nærstadda. Þegar mest lét voru átta lögreglumenn á staðnum til að koma skikki á hópinn.
„Þetta er hegðun sem er hvorugum skólanum til sóma“
Sólveig á von á því að póstur verði sendur á foreldra MR-inga seinna í dag vegna atviksins. Þær Sólveig og Guðrún ætla einnig að funda með nemendafélögum sínum og vera í samráði um hvernig best sé að leysa úr málinu.
Fleiri viðburðir eru á dagskrá VÍ – MR vikunnar. Í dag eru boðhlaup og reiðitog á dagskrá í Hljómskálagarði og á morgun er ræðukeppni á milli skólanna.