Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur greint frammistöðu íslenskra nemenda í PISA-könnunni niður á sjö fjölmennustu sveitarfélög landsins og borið saman við landsmeðaltal. Þessi sjö sveitarfélög ná til 75 prósent þátttakenda í PISA árið 2025 á Íslandi.
Hin sveitarfélögin voru tekin saman og sett undir flokkinn „önnur sveitarfélög“ en það samsvarar 25 prósentum nemenda sem tóku prófið.
Nemendur í Kópavogi komu best út úr prófinu og voru yfir meðaltali í öllum þremur greinunum vísindum, stærðfræðilæsi og lesskilningi. Nemendur í Akureyrarbæ og Reykjavík voru einnig yfir meðaltali og sköruðu nemendur í Garðabæ fram úr þegar litið er til stærðfræðilæsis.
Nemendur í Reykjanesbæ komu verst út úr prófinu og þar á eftir nemendur í Hafnarfirði. Önnur sveitarfélög voru einnig undir landsmeðaltalinu.
„Frammistaða nemenda í öðrum sveitarfélögum í heild var undir landsmeðaltali á öllum sviðum en hafa þarf í huga að í þessum hópi eru fjölmörg sveitarfélög sem eru sum hver ólík hvað varðar stærð, staðsetningu og lýðfræðilegar breytur,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Leiðréttu eftir stöðu
Ráðuneytið skoðaði einnig muninn frá landsmeðaltali eftir að leiðrétt var fyrir erlendum bakgrunni og ólíkri félags- og efnahagslegri stöðu nemenda. Við leiðréttinguna var litið til tveggja þátta, annars vegar menntunar og starfs foreldra og eigna á heimilinu og hins vegar nemenda sem eiga foreldra eða forsjáraðila sem báðir fæddust erlendis.
„Ef munur á frammistöðu nemenda í sveitarfélagi og landsmeðaltali minnkar eða hverfur við leiðréttinguna skýrist munurinn að hluta eða að mestu af samsetningu nemendahópsins. Gott er að hafa í huga að leiðréttar niðurstöður segja þó ekki einar og sér til um gæði skólastarfs,“ segir í tilkynningunni.
Þá er Reykjavík eina sveitarfélagið sem mælist yfir meðaltali í öllum þremur greinunum eftir leiðréttinguna.
„Munur á nemendum í Reykjanesbæ og nemendum á landsvísu minnkar eftir leiðréttingu, enda er þar að finna hæsta hlutfall innflytjenda í sveitarfélögunum sjö ásamt því að félags- og efnahagsleg staða mælist þar lægst að jafnaði.“
Flestir í Reykjavík
Þegar litið er til grunnhæfni og afburðanemenda eru niðurstöðurnar álíka þeim fyrri.
Afar fáir nemendur reyndust vera með afburðahæfni og eru nemendur í Reykjavík þeir einu sem skilja sig frá landsmeðaltali. Í öllum sveitarfélögunum var hlutfall nemenda með afburðahæfni undir landsmeðaltali bæði í vísindum og stærðfræðilæsi.
Þegar leiðrétt er fyrir áðurnefndum þáttum eru flestir nemendur á pari hvorn við annan. Reykjavík skarar aftur fram úr þegar litið er til nemenda með afburðahæfni.