Á milli 250 og 500 þúsund menntskælingar og stuðningsfólk þeirra, ekki síst foreldrar þeirra og háskólastúdentar, mótmæltu víða um Frakkland á þriðjudag og kröfðust betri aðbúnaðar í framhaldsskólum. Þetta voru fjölmennustu mótmælin frá því að ungmenni byrjuðu að loka aðgangi að menntaskólum um miðjan september.
Lokuðu skólarnir skipta nú hundruðum og enn sér ekki fyrir endann á þessum fjölmennu mótmælum, sem hófust sem stuðningsaðgerð við kennara í einum skóla en eru löngu farin að teygja sig langt út fyrir skólakerfið. Þannig freistaði fjöldi ungmenna þess í gær að loka Saint-Germain-breiðgötunni í hjarta Parísar með götuvígjum, en lögregla brást við af hörku eins og undanfarna daga og sparaði hvorki kylfurnar né táragasið þegar hún ruddi götuna að mestu.
Stórslösuð ungmenni og lögregla sökuð um of mikla hörku
Yfir fimm hundruð mótmælendur voru handteknir á þriðjudag og hátt í sjö þúsund frá því að mótmælin hófust. Fjöldi fólks hefur meiðst í mótmælunum og ungmenni niður í fjórtán ára orðið fyrir mjög alvarlegum meiðslum vegna aðgerða lögreglu, sem hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir óþarfa hörku.
Alvarlegasta slysið varð á mánudag þegar 15 ára nemi missti framhandlegg þegar hvell- eða höggsprengja sprakk í eða við hendi hans. Heimildum ber ekki saman um hvort henni hafi verið skotið á hann eða hann hafi tekið sprengjuna upp. Móðir piltsins heldur því fyrrnefnda fram. Notkun þessara sprengja hefur verið bönnuð tímabundið, á meðan rannsókn á atvikinu stendur yfir.
Unglingsstúlka missti sjón á öðru auga og 14 ára piltur missti nokkrar tennur og brákaðist á kjálka þegar þrír lögreglumenn veittust að honum og einn þeirra skaut táragashylki í andlit hans af stuttu færi. Alls eru 18 mál til rannsóknar hjá innra eftirliti lögreglunnar vegna starfa hennar í mótmælunum.
Stjórnvöld réttlæta framgöngu lögreglu
Hvorutveggja innanríkisráðherrann Laurent Nunez og Sébastien Lecornu forsætisráðherra verja harkalega framgöngu lögreglumanna gegn mótmælendum og segja þá aðeins vera að vinna vinnuna sína. Í sjónvarpsávarpi sem Lecornu flutti á miðvikudag vísaði hann ásökunum um óþarfa ofbeldi lögreglu á bug og sagði heldur ekkert hæft í ásökunum um að stjórnvöld hefðu skipað henni að ganga hart fram gegn hinum ungu mótmælendum. Um leið boðaði hann aðgerðir sem ætlað er að koma til móts við kröfur unga fólksins.
Í Speglinum á miðvikudag var rætt um mótmælin og viðbrögð yfirvalda við Torfa Túliníus prófessor við Háskóla Íslands, en hann þekkir vel til stjórn- og samfélagsmála í Frakklandi. Hlusta má á viðtalið við hann í spilaranum hér að neðan.