„Þetta er íslenskt vandamál, verðbólgan er ekki innflutt. Þetta er íslenskt vandamál sem við þurfum að leysa hér í sameiningu,“ sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í dag.
Ásgeir fór yfir stöðuna í efnahags- og kjaramálum. Hann sagði að þróun atvinnulífsins væri um sumt þannig að hægt væri að fara að lækka vexti. Það væri þó ekki enn raunhæft vegna þess hve verðbólga er enn mikil.
Húsnæði og leiguverð, þjónusta og matur og drykkur eru það sem helst skýrir verðbólguna, sagði Ásgeir. Hann sagði að ef tólf mánaða taktur verðbólgu gengi niður þá væri hægt lækka vexti.
„Við búumst við því að hún sé í hámarki núna. Þetta er eitthvað sem við spáðum og bjuggumst við,“ sagði Ásgeir. „Ég tel að það séu mjög góðar líkur á því að við gætum séð fram á verðhjöðnun þegar kemur fram á næsta ár.“
Ásgeir lagði áherslu á mikilvægi þess að samningar héldu. Hann sagði að laun hefðu hækkað mun meira hér en í öðrum löndum og væru mjög há í alþjóðlegum samanburði. Hann sagði að það væri gott að hafa góð lífskjör hér en að Íslendingar gætu ekki verðlagt sig eins og þeir væru einir í heiminum.