Formenn VR og Fagfélaganna á fund forsætisráðherra

Formenn VR og Fagfélaganna á fund forsætisráðherra

Formenn VR og Fagfélaganna á fund forsætisráðherra

Jakob Tryggvason, formaður Fagfélaganna, skrifar undir uppsögn samninga. Um fimmtíu kjarasamningar eru þar undir.

VR segir upp þremur kjarasamningum, það er samningi við Samtök atvinnulífsins, við Félag atvinnurekenda og samningi leiðsögufólks.

„Samtök atvinnulífsins eru náttúrulega að taka þá áhættu að stefna öllu í bál og brand á vinnumarkaði. Við höfum teygt okkur gríðarlega langt til að koma til móts við þau og þau hafa varla teygt sig þumlung á móti,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR.

„Hér varð alvarlegur forsendubrestur og auðvitað verður að bregðast við honum. Til þess eru forsenduákvæði.“

„Við höfum auðvitað verið með það útistandandi gagnvart Samtökum atvinnulífsins að þau hafa í rauninni ekki átt samningasamtal við okkur.“

Þetta segir Halla Gunnarsdóttir í viðtali við fréttastofu í hádegisfréttum.

„Það er mjög alvarleg staða fyrir traust á vinnumarkaði.“

Jakob Tryggvason, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, stærsta félags Fagfélaganna, segir lítið hafa heyrst frá Bjarna Benediktssyni framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins.

„Ekkert nema bara að mögulega, kannski verði einhvers konar samtal seinna.“

Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir stöðu kjaradeilu félagsins við Samtök atvinnulífsins vera óbreytta. Hún og formaður VM hyggist halda á fund Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í ráðherrabústaðnum á Tjarnargötu á eftir.

„Hún hefur beitt sér mjög kröftuglega í að reyna að finna lausn á þessari deilu og við ætlum að reyna eitt samtal til viðbótar.“

Hún segir ótímabært að segja hvað verði til umræðu á þeim fundi.

„En hún hefur auðvitað verið að spila út þessum hugmyndum um einhvers konar vaxtabótaauka, sem hefur verið greint frá. Þar eru kannski einhverjar útfærslur og annað sem er hægt að ræða.“

Fundarmenn hafa tekið sér hlé og snæða hádegisverð.

Fréttastofa hefur í morgun reynt að ná tali af Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, án árangurs. Sömuleiðis hefur ekki náðst í Jón Halldór Ólafsson, formann Samtaka atvinnulífsins.

Fulltrúar VR, Fagfélaganna og LÍV segjast bíða eftir símtali frá Bjarna. Félögin funda í húsnæði Fagfélaganna á Stórhöfða og má segja að loftið sé spennuþrungið.

Um 50 kjarasamningar eru undir hjá fagfélögunum og þeim verður öllum sagt upp að óbreyttu.

VR segir upp þremur kjarasamningum, það er samningi við Samtök atvinnulífsins, við Félag atvinnurekenda og samningi leiðsögufólks.

VR, Fagfélögin og LÍV funda stíft í húsnæði Fagfélaganna við Stórhöfða. Halla Gunnarsdóttir formaður VR steig út af fundi í örskamma stund og ræddi við fréttastofu.

Hún segir stöðuna enn þunga og í raun óbreytta. Allt stefni í að kjarasamningum verði sagt upp.

Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður er á staðnum og segir að mikil vinna standi yfir við að prenta út og undirrita uppsögn hvers og eins kjarasamnings.

Gunnar Sigurðsson, formaður VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna, segist ekki vera bjartsýnn á að samningar haldi.

Fátt geti komið í veg fyrir að samningum verði sagt upp eins og staðan er núna.

Fulltrúar VR, Fagfélaganna og LÍV segjast bíða eftir símtali frá Bjarna Benediktssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins. Félögin funda í húsnæði Fagfélaganna á Stórhöfða og má segja að loftið sé spennuþrungið.

Að sögn forsvarsmanna félaganna voru Samtök atvinnulífsins að ljúka fundi. Þeir vænti þess að stjórn SA hafi brýnt fyrir forystu samtakanna að ná samtali við verkalýðshreyfinguna.

Fjármálaráðstefna Sambands íslenskra sveitarfélaga er í fullum gangi og þar komu kjarasamningar við sögu – þó ekki þeir sem hugsanlega verður sagt upp í dag.

Almar Guðmundsson formaður sambandsins og Arnar Þór Sævarsson framkvæmdastjóri þess fögnuðu báðir ákvörðun Reykjavíkurborgar um að leggja niður sína eigin samninganefnd og fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga að sjá um samninga við starfsmenn Reykjavíkurborgar.

Reykjavíkurborg hefur verið með eigin samninganefnd í á fjórða áratug. Nú færast störf hennar til samninganefndar sveitarfélaga.

Arnar Þór sagði að þetta væri ánægjulegt þar sem nú yrði samið fyrir öll sveitarfélögin saman og að þetta hjálpaði líka til við að halda utan um upplýsingar um kjaramál.

Uppsagnarákvæði kjarasamninga hjá opinberum félögum virkjast þegar kjarasamningum á almennum markaði er sagt upp. Þá er hvorum hlutaðeigandi, það er vinnuveitenda og stéttarfélagi heimilt að segja upp kjarasamningi.

Þau ákvæði virkjast að öllum líkindum síðar í dag þegar VR, Fagfélögin og LÍV segja upp samningum við Samtök atvinnulífsins. Slíkt ákvæði virkjast til að mynda hjá Sameyki, BHM og Kennarasambandinu.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB, sem Sameyki er hluti af var gestur á Morgunvaktinni á Rás 1 í gærmorgun. Hún sagði það í höndum hvers og eins aðildarfélags að taka ákvörðun um að segja upp samningum.

Sjálf teldi hún mögulega tilefni til að rifta kjarasamningum vegna áforma fjármálaráðherra um að afnema áminningarskyldu opinberra starfsmanna. Þá væri hægt að semja um áminningarskyldu í kjaraviðræðum.

Jakob Tryggvason formaður Rafiðnaðarsambandsins sem er stærsta félagið innan sambands Fagfélaganna sagði í samtali við fréttastofu fyrir fund Fagfélaganna og VR að aðildarfélögin hefðu veitt heimild til að segja upp kjarasamningunum.

Hann sagði að félagsmenn stéttarfélaganna sem tilheyra Fagfélögunum þæðu laun samkvæmt fjölmörgum kjarasamningum, 20 þeirra eru bundnir af forsenduákvæðinu.

Halla Gunnarsdóttir formaður VR var til viðtals í Morgunútvarpinu á Rás 2. Hún segir engar nýjar vendingar hafa orðið í samtali félagsins við Samtök atvinnulífsins og að enn standi til að slíta kjarasamningum.

VR hafi skynjað lítinn samningsvilja þrátt fyrir fjölmargar tillögur VR. Spurð hvers vegna hún telji að tillögum þeirra hafi verið hafnað segir hún samtalið hafa verið afar einhliða.

„Eitt er að hafna tillögum og annað er að koma með einhverjar gagntillögur. Við erum búin að vera dálítið einmana í þessu samtali“

Hún ítrekaði að margir félagsmenn hefðu ekki fengið neitt umfram kjarasamningsbundnar hækkanir og að þær hefðu ekki haldið í við verðbólgu.

„Ég veit ekki til hvers maður ætti að vera með stéttarfélög ef þau semja um launalækkanir fyrir sitt fólk ár eftir ár.“

Við hefjum fréttavakt þar sem fylgst verður með gangi mála í kjaramálum í dag. Ég heiti Iðunn Andrésdóttir og mun færa ykkur fréttir eftir því sem þær berast.

VR hyggst rifta kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins í dag. Fundur Fagfélaganna hófst fyrir skemmstu í húsnæði þeirra við Stórhöfða í Reykjavík. Fulltrúar VR og LÍV sitja fundinn.

#fagfélaganna #formenn #forsætisráðherra #fund

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-08-formenn-vr-og-fagfelaganna-a-fund-forsaetisradherra-489208

📰 Aðrar fréttir

Sannleikurinn á bak við sögusagnir um afsökunarbeiðni Harry og Markle
📅 08.10.2026 👁️ 0
Sannleikurinn á bak við sögusagnir um afsökunarbeiðni Harry og Markle
Sussex-hertogahjónin Harry prins og Meghan Markle ætla ekki að biðja Vilhjálms, bróður Harry, og eiginkonu hans; Katrínu Middleton, afsökunar á viðtal...
Ekki rétt sem Halla segir - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 0
Ekki rétt sem Halla segir - Vísir
Bjarni Benediktsson ræddi við fjölmiðla áður en fundurinn hófst. Hann sagði það verða að koma í ljós hvað gerist á fundinum. Eins og fram hefur komið ...
Fyrrverandi landsliðskona greinir frá svimandi kostnaði við íþróttir barnanna – „Rétt tæp milljón í æfingagjöld“
📅 08.10.2026 👁️ 0
Fyrrverandi landsliðskona greinir frá svimandi kostnaði við íþróttir barnanna – „Rétt tæp milljón í æfingagjöld“
Rakel Dögg Bragadóttir, fyrrverandi landsliðskona í handbolta, greinir frá svimandi kostnaði við íþróttaiðkun barna hennar þriggja. Þarf hún að greiða...
Stærstu sveitarfélög landsins öll rekin með halla
📅 08.10.2026 👁️ 0
Stærstu sveitarfélög landsins öll rekin með halla
Öll sex fjölmennustu sveitarfélög landsins voru rekin með halla á fyrstu sex mánuðum ársins, að minnsta kosti þegar kemur að A-hluta rekstrarins, þess...
Verð­launin ráð­gáta og til­finningin klikkuð - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 0
Verð­launin ráð­gáta og til­finningin klikkuð - Vísir
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum voru tilkynnt klukkan 11 í morgun og bættist Anne Carson í hóp Íslendinga sem hlotið hafa bókmenntaverðlaunin ásamt Hall...
Afhjúpar hvaða leikkona var lögð í einelti og stimpluð „mesta tíkin“ á setti
📅 08.10.2026 👁️ 2
Afhjúpar hvaða leikkona var lögð í einelti og stimpluð „mesta tíkin“ á setti
Leikarinn Michael Douglas segir að Charlie Sheen hafi límt skilti á bak Sean Young, meðleikkonu þeirra í Wall Street, sem á stóð „Mesta tíkin á settin...
Eigin­mennirnir fá „ahhsonna að­eins“ út­reið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Eigin­mennirnir fá „ahhsonna að­eins“ út­reið - Vísir
Um er að ræða sýninguna Bíddu bara: Þetta reddast! en um er að ræða framhald af sýningunni Bíddu bara sem sló í gegn í Gaflaraleikhúsinu á sínum tíma....
Nicole harðorð í garð frumvarps Sjálfstæðismanna – „Jafnvel fasismi í sinni tærustu mynd“
📅 08.10.2026 👁️ 1
Nicole harðorð í garð frumvarps Sjálfstæðismanna – „Jafnvel fasismi í sinni tærustu mynd“
Nicole Leigh Mosty, formaður Fjölmenningarseturs og fyrrverandi þingkona Bjartrar framtíðar, segir nýtt frumvarp Sjálfstæðisflokksins sýna útlendingaa...
Hefja form­legar við­ræður um myndun nýs meiri­hluta - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
Hefja form­legar við­ræður um myndun nýs meiri­hluta - Vísir
Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu sem flokksfélögin sendu frá sér í morgun. Fyrr í mánuðinum var greint frá því að meirihluti Samfylkingar ...
Konur, völd og verðleikar
📅 08.10.2026 👁️ 3
Konur, völd og verðleikar
Konur, völd og verðleikar Fréttin8. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Samsett mynd: ChatGBT. Páll Vilhjálmsson skrifar:...
"Ominous signs" of winter pressures as NHS waiting list grows
📅 08.10.2026 👁️ 2
"Ominous signs" of winter pressures as NHS waiting list grows
NHS winter pressures appear to be building already, with rises in waiting times for planned surgery.
Ís­lensk nóbels­verð­laun og erfið staða fram­halds­skólanna - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Ís­lensk nóbels­verð­laun og erfið staða fram­halds­skólanna - Vísir
Fjallað var um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12.  Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 8. október 2026 Rekstrarstaða framhaldsskólanna hefur ...
Vill fækka borgar­full­trúum um átta - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Vill fækka borgar­full­trúum um átta - Vísir
Áskorunin var samþykkt á þriðjudag með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknar og Miðflokksins gegn þremur atkvæðum Vi...
Seðlabankastjóri: Engin gullgerðarvél fundin upp á Íslandi
📅 08.10.2026 👁️ 2
Seðlabankastjóri: Engin gullgerðarvél fundin upp á Íslandi
Á fundi Seðlabankans miðvikudaginn 7. október, þegar sagt var frá ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%, var ítarlega f...
Lög­reglan leitar upp­lýsinga um rispaða bíla - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Lög­reglan leitar upp­lýsinga um rispaða bíla - Vísir
Þrjár tilkynningar bárust í gær og í fyrradag um skemmdarverk samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. „Bifreiðarnar voru kyrrstæðar í bifreiðastæðum við Fl...
Fjár­mála­ráð­herra flautaður niður af sviði - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Fjár­mála­ráð­herra flautaður niður af sviði - Vísir
Daði Már var að ljúka ávarpi sínu þar sem hann fjallaði um samstarf ríkis og sveitarfélaga þegar hávært flaut stöðvaði hann. Eftir rúma mínútu af fáti...
Krist­rún reyni að hafa milli­göngu í deilunni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Krist­rún reyni að hafa milli­göngu í deilunni - Vísir
Halla segir í samtali við fréttastofu að fulltrúar félaganna geri ráð fyrir að fara á skrifstofu Samtaka atvinnulífsins milli klukkan tvö og þrjú í da...
Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna - Vísir
Bryndís segist vilja bregðast við þessu og var til viðtals á Bítinu á Bylgjunni í morgun. Í frumvarpinu er lagt til að lögfest verði sérstök regla sem...
Sendi 10 ára stúlku kynferðisleg skilaboð og bað um myndir af kynfærum hennar
📅 08.10.2026 👁️ 2
Sendi 10 ára stúlku kynferðisleg skilaboð og bað um myndir af kynfærum hennar
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni gegn 10 ára gamalli stúlku, en brotin áttu sér stað á samskiptaforritinu Snapchat.Ma...
Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA og með mestu afburðahæfnina
📅 08.10.2026 👁️ 2
Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA og með mestu afburðahæfnina
Frammistaða nemenda í Reykjavík og Kópavogi í PISA 2025 var yfir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum rannsóknarinnar, þ.e. vísindum, stærðfræðilæsi o...
Íslenskur ríkisborgari hlýtur Nóbelsverðlaun
📅 08.10.2026 👁️ 2
Íslenskur ríkisborgari hlýtur Nóbelsverðlaun
Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár í bókmenntum. Carson er kanadísk en hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022.Greint var frá þessu n...
Sólveig Anna sendir eitraða pillu: „Fólk hefur þá væntanlega ekki um annað að ræða en að fara að undirbúa verkfallsátök“
📅 08.10.2026 👁️ 2
Sólveig Anna sendir eitraða pillu: „Fólk hefur þá væntanlega ekki um annað að ræða en að fara að undirbúa verkfallsátök“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að hún geti ekki ímyndað sér að Halla Gunnarsdóttir formaður VR hafi heimild frá BSRB til að hóta upps...
Leita að skemmdarvörgunum sem rispuðu þrjá bíla – Hakakross á bílhurðina
📅 08.10.2026 👁️ 2
Leita að skemmdarvörgunum sem rispuðu þrjá bíla – Hakakross á bílhurðina
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að skemmdarvargi eða vörgum sem rispuðu þrjá bíla í Vesturbæ Reykjavíkur. Greint hefur verið frá því að hakak...
Nem­endur í Reykja­vík koma best út úr PISA - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Nem­endur í Reykja­vík koma best út úr PISA - Vísir
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur greint frammistöðu íslenskra nemenda í PISA-könnunni niður á sjö fjölmennustu sveitarfélög landsins og borið sama...
Tjónið á nýju lögninni rakið til mistaka um borð
📅 08.10.2026 👁️ 2
Tjónið á nýju lögninni rakið til mistaka um borð
Forsvarsmenn fyrirtækisins Subsea7, sem sá um að leggja lögn milli lands og Vestmannaeyja í sumar, hafa viðurkennt að tjón á lögninni megi rekja til m...
„Þetta er hegðun sem er hvorugum skólanum til sóma“
📅 08.10.2026 👁️ 2
„Þetta er hegðun sem er hvorugum skólanum til sóma“
Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, segir ömurlegt að kappleikur milli Verzlunarskólans og Menntaskólans í Reykjavík hafi f...
Viðvörunarbjöllur þögguðu niður í Daða Má
📅 08.10.2026 👁️ 2
Viðvörunarbjöllur þögguðu niður í Daða Má
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, flutti ræðu á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í morgun en henni lauk með öðrum hætti en fólk ha...
Krist­rún og Þor­gerður sækja ekki Hring­borð norðurslóða - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Krist­rún og Þor­gerður sækja ekki Hring­borð norðurslóða - Vísir
Kristrún tók þátt á ráðstefnunni í fyrra en hefur ekki tök á því vegna annarra skuldbindinga, að sögn aðstoðarmanns hennar. Þá áttu bæði Kristrún og Þ...
Frakkland logar í mótmælum
📅 08.10.2026 👁️ 2
Frakkland logar í mótmælum
Á milli 250 og 500 þúsund menntskælingar og stuðningsfólk þeirra, ekki síst foreldrar þeirra og  háskólastúdentar, mótmæltu víða um Frakkland á þriðju...
Nemendur í Reykjavík og Kópavogi yfir landsmeðaltali
📅 08.10.2026 👁️ 2
Nemendur í Reykjavík og Kópavogi yfir landsmeðaltali
Nemendur í Kópavogi náðu árangri yfir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum PISA-rannsóknarinnar í fyrra sem kynnt var í sumar, það er í vísindum, stær...
Nýtt vígbúnaðarkapphlaup á meðan afvopnunar er minnst
📅 08.10.2026 👁️ 5
Nýtt vígbúnaðarkapphlaup á meðan afvopnunar er minnst
Um helgina verða liðin 40 ár frá leiðtogafundinum í Höfða, þar sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna,...
Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels
📅 08.10.2026 👁️ 3
Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels
Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Kanadíski rit­höf­und­ur­inn Anne Car­son fær bók­mennta­verð­laun Nó­bels. Til­kynnt var um ákvörð­un nó­...
Canadian poet Anne Carson wins Nobel Prize in Literature
📅 08.10.2026 👁️ 4
Canadian poet Anne Carson wins Nobel Prize in Literature
Carson, 76, is celebrated for works that often cross boundaries between poetry, fiction and scholarship.
Anne Carson: 'Bold and inventive' Canadian poet wins Nobel Prize in Literature
📅 08.10.2026 👁️ 2
Anne Carson: 'Bold and inventive' Canadian poet wins Nobel Prize in Literature
Carson, 76, is celebrated for works that often cross boundaries between poetry, fiction and scholarship.
Tengir þú við þetta? – Samskipti við tilfinningalega vanþroskað fólk
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tengir þú við þetta? – Samskipti við tilfinningalega vanþroskað fólk
Ragnhildur Þórðardóttir, eða Ragga Nagli eins og hún er betur þekkt, er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari. Á Facebook heldur hún úti vinsæ...
Anne Carson hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Anne Carson hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels - Vísir
Sænska akademían greindi frá þessu á fréttamannafundi sem hófst klukkan 11, en Nóbelsverðlaunin verða formlega afhent í Stokkhólmi þann 10. desember á...
Verðbólgan íslenskt vandamál
📅 08.10.2026 👁️ 4
Verðbólgan íslenskt vandamál
„Þetta er íslenskt vandamál, verðbólgan er ekki innflutt. Þetta er íslenskt vandamál sem við þurfum að leysa hér í sameiningu,“ sagði Ásgeir Jónsson s...
Ásmundur fengið nóg og lætur lækninn heyra það – „Bensínstittur með háskólapróf“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ásmundur fengið nóg og lætur lækninn heyra það – „Bensínstittur með háskólapróf“
Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi þingmaður og stjórnarmaður í SÁÁ, fer hörðum orðum um Birgi Guðjónsson lækni í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag....
Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum
📅 08.10.2026 👁️ 5
Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum
Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum Mennta­mála­ráðu­neyt­ið hef­ur birt nið­ur­brot á nið­ur­stöð­um PISA eft­i...
Kjaravaktin: Ögur­stund rennur upp - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
Kjaravaktin: Ögur­stund rennur upp - Vísir
Forsenduákvæði kjarasamninganna brast í ágúst eftir að verðbólgan mældist 5,6 prósent. Þeir sem komu að samningunum fengu þá heimild til klukkan fjögu...
BBC borgar hvítu starfsfólki lægri laun – Munurinn allt að 13,2 prósent
📅 08.10.2026 👁️ 4
BBC borgar hvítu starfsfólki lægri laun – Munurinn allt að 13,2 prósent
Hvítir starfsmenn breska ríkisútvarpsins BBC eru með lægra miðgildi launa en starfsfólk úr „minnihlutahópum“ í sex af sjö starfsflokkum stofnunarinnar...
Three sisters who died in sea off Brighton took own lives, inquest finds
📅 08.10.2026 👁️ 4
Three sisters who died in sea off Brighton took own lives, inquest finds
The bodies of Jane Adetoro, Christina Walters and Rebecca Walters were pulled from the water on 13 May.
Three sisters who drowned in sea off Brighton took own lives, inquest finds
📅 08.10.2026 👁️ 2
Three sisters who drowned in sea off Brighton took own lives, inquest finds
The bodies of Jane Adetoro, Christina Walters and Rebecca Walters were pulled from the sea in May.
Draumur reiðhjóla­við­gerðar­mannsins rættist - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Draumur reiðhjóla­við­gerðar­mannsins rættist - Vísir
Flosi las, eins og svo margir aðrir, viðtal Vísis við James Fleatcher, sem sagðist vera að gefast upp á rólunum; hann væri að hugsa um að leggja niður...
Nær 700 bíða afplánunar og ljóst að hluti refsinga fyrnist
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nær 700 bíða afplánunar og ljóst að hluti refsinga fyrnist
Fangelsismálastofnun fer þess á leit við fjárlaganefnd Alþingis að fjárveitingar stofnunarinnar verði auknar um 280 milljónir á næsta ári frá því sem ...
Bein út­sending: Hver hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Bein út­sending: Hver hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels? - Vísir
Ár hvert veitir Nóbelnefndin hin virtu Nóbelsverðlaun í flokkunum lífefna- og læknisfræði, eðlisfræði, efnafræði, bókmenntum og að lokum friðarverðlau...
Bað um myndir af kyn­færum tíu ára stúlku - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Bað um myndir af kyn­færum tíu ára stúlku - Vísir
Í ákæru þess efnis, sem þingfest var bak við luktar dyr í Héraðsdómi Reykjaness í gær, segir að maðurinn hafi áreitt stúlkuna í gegnum samskiptaforrit...
Á­reitti tíu ára stúlku í­trekað í fjóra daga - Vísir

Stefnt að því að rifta kjarasamningum í dag
📅 08.10.2026 👁️ 4
Stefnt að því að rifta kjarasamningum í dag
Fjármálaráðstefna Sambands íslenskra sveitarfélaga er í fullum gangi og þar komu kjarasamningar við sögu – þó ekki þeir sem hugsanlega verður sagt upp...
Bíða eftir að Bjarni hringi
📅 08.10.2026 👁️ 2
Bíða eftir að Bjarni hringi
Um 50 kjarasamningar eru undir hjá fagfélögunum og þeim verður öllum sagt upp að óbreyttu. VR segir upp þremur kjarasamningum, það er samningi við Sam...