Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu sem flokksfélögin sendu frá sér í morgun.
Fyrr í mánuðinum var greint frá því að meirihluti Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sem myndaður var eftir kosningar í vor væri sprunginn. Mátti rekja það til ágreinings um staðsetningu íþróttavalla í sveitarfélaginu, sem samanstendur af tveimur bæjum, Garði og Sandgerði.
Í tilkynningunni sem birt var í morgun segir að oddvitar flokkanna – þeir Svavar Grétarsson frá S-lista og Anton Guðmundsson frá B-lista – segi viðræðurnar ganga vel og að ekki sé málefnalegur ágreiningur á milli framboðanna tveggja.
„Bæði framboð vinna að því að byggja upp sterkt og öflugt samfélag í Suðurnesjabæ. Munu framboðin leitast eftir því að Alexandra Jóhannesdóttir muni starfa áfram sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar enda um öflugan einstakling þar að ræða.
Ef viðræður ganga áfram vel má eiga von á að skrifað verði undir málefnasamning um komandi helgi. Ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu,“ segir í tilkynningunni.