Konur, völd og verðleikar

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður birti á Facebook lista undir fyrirsögninni Konur við völd. Lögmaðurinn hefur engin frekari orð um listann. Líklega hugsar hann sér samantektina sem umræðuvaka. Í morgun höfðu 150 lesendur Jóns Steinars látið ljós sitt skína. Listinn er birtur í heild neðanmáls.

Jón Steinar Gunnlaugsson, fv. hæstaréttardómari.
Listi Jóns Steinars er hvorki tæmandi né heildarúttekt á völdum kvenna í íslensku samfélagi. Með þeim fyrirvara er hagur kvenna nokkuð góður á mælikvarða vegtyllna og mannaforráða. Svo mjög að karlar, þannig þenkjandi, mættu tala um bakslag. En þeir eru fáir karlarnir sem taka sér orðið í munn, nema þeir tilheyri einhverjum minnihlutahópi með sérvisku á dagskrá.
Þögn hversdagskarla um framgang kvenna í valdakerfi samfélagsins má túlka þannig að þeir séu ekki þjakaðir af minnimáttarkennd þótt konur haldi um stjórnartaumana. Það er vel, sýnir manndóm og þroska íslenskra karla.
Ef gefið er að verðleikar skiptist tiltölulega jafnt á milli kynjanna, sem virðist rýmileg ályktun, má spyrja hvers vegna karlar í auknum mæli velja sig frá mannaforráðum og gefa valdastöður til kvenna. Um leið og spurningin er sett fram blasir við fölsk forsenda. Karl sækist ekki eftir ábyrgðastöðu fyrir hönd kynsins sem hann tilheyrir. Tilfallandi hefur ekki prófað að vera kona. Finnst engu að síður ólíklegt að konur klifri metorðastigann í þágu kvenna.
Einboðið er að Jón og Gunna velja sér menntun og starfsvettvang til samræmis við getu, áhuga og metnað. Persónulegt val einstaklinga leiðir aftur til áhugaverðrar skekkju milli kynjanna á æðstu stöðum.
Á örfáum áratugum, hálfum mannsaldri eða svo, hafa þau umskipti orðið að þar sem karlar sátu áður helstu valdastöður ríkja nú konur.
Ólíklegt er að karlar á framaárum, fertugs- og fimmtugsaldri, séu verr af guði gerðir en hálfu eldri karlar. Um konur á sama aldri má slá föstu að þær hafa tækifæri til mennta og starfa sem ömmur þeirra og langömmur höfðu ekki. Látum liggja á milli hluta hvort ömmur og langömmur höfðu áhuga á mannaforráðum eður ei.
Sjaldnast er ein skýring á samfélagsbreytingum. Fjórar breytur má þó nefna. Í fyrsta lagi lægri fæðingartíðni. Dæmigerð íslensk kona á eitt til tvö börn og það fyrsta fæðist þegar konan stendur nærri þrítugu. Hægara er um vik fyrir konur að menntast og leggja drög að starfsframa með fá börn. Í öðru lagi jafnréttisbaráttan sem reis á áttunda áratug síðustu aldar. Í þriðja lagi almenn velmegun. Tvær fyrstu breyturnar varða framgang kvenna; sú þriðja metnaðarleysi karla. Það má eiga náðugt líf án þess að leggja of mikið á sig. Fjórða breytan er háskólamenntun. Stjórnendastöður, frá millistjórnendum og upp úr, eru mannaðar sérfræðingum. Í grófum dráttum er algengt hlutfall kynjanna í háskóladeildum 70-30 kvenkyni í vil.
Ekki er ástæða til að amast við framgangi kvenna í valdakerfi samfélagsins. Karlar kjósa síður en konur að komast til metorða. Það er bláköld staðreynd, jafn köld og sú að karlar hafa tækifærin. En það er tilefni til að spyrja spurninga á borð við þá hvort blæbrigði mannlífsins verði snauðari þegar annað kynið er í yfirtölu á valdastólum.
Upplifanir og ímyndanir eiga fremur upp á pallborðið í kvennaríki en áþreifanleg sannindi. Loftslagsvá og kynjaþvaðri óx fiskur um hrygg samhliða kvenvæðingunni. Önnur nærtæk spurning er hvort ríkjandi hneigð ráðandi kyns sé að takmarka framgang minnihlutakynsins. Það eru jú verðleikar sem eiga að ráða ferðinni. Ekki síst í opinberum stöðuveitingum.
Konur við völd (listi Jóns Steinars Gunnlaugssonar):