Um er að ræða sýninguna Bíddu bara: Þetta reddast! en um er að ræða framhald af sýningunni Bíddu bara sem sló í gegn í Gaflaraleikhúsinu á sínum tíma. Þar opna þær sig um allt sem viðkemur íslensku þjóðinni, segja satt en ljúga líka og færa í stílinn að sögn Bjarkar. Uppselt er á tólf sýningar af fjórtán fyrirhuguðum og lítið eftir af miðum á síðustu tvær en fleiri sýningar eru í bígerð eftir áramót. Björk segir tríóið fyrst hafa verið efins um það hvort þær hefðu eitthvað nýtt fram að færa eftir að hafa opnað sig á gátt frammi fyrir alþjóð á sínum tíma. Þær áhyggjur reyndust þó óþarfi.
„Jú, ég viðurkenni það. Við óttuðumst að vera bara búin með alla brandarana en biddu fyrir þér, það fæddust bara nýir þó að ég hafi í fyrstu hugsað að ég hefði ekkert nýtt fram að færa. Ég talaði um breytingaskeiðið síðast en hvað núna? Svo fór maður bara að gramsa og það er hellingur af sannri sögu sem átti eftir að segja og heilmikið gerst. Síðast var Salka að stíga sín fyrstu skref sem móðir, Selma að skilja og ég á breytingaskeiðinu en núna er Selma á breytingaskeiðinu, ég með annan fótinn í gröfinni og Salka hrædd um að klúðra barnauppeldinu.“
Nóg hafi verið til af yrkisefni. Björk sé sem dæmi orðin amma, sem sé endalaus uppspretta gríns og glens. „Svo var Salka blaut á milli eyranna síðast en er nú í miðjum göngum með tvö börn að panta óþolandi námskeið, smyrja þrjú nesti og vakna fimm á morgnana til að ná að stimpla barnið inn á námskeið, Selma er komin með hræðsluna við beinþynningu og að geta ekki troðið sér í pallíettukjól fyrir framan landsmenn.“
Björk segir þær stöllur ekki taka neina fanga á sýningunni sem er ekki einungis uppistandssýning heldur taka þær einnig frumsamin lög. Hún segir þær í raun opna sig á gátt í sýningunni, þó margt sé fært í stílinn.
Maður kynnist ykkur vel á þessari sýningu?
„Já, við erum alveg óhræddar við að koma fram undir eigin nöfnum og við að láta allt flakka og þess vegna ljúga upp á eiginmenn okkar og börn eins og grínistar eiga að gera. Við erum auðvitað að skreyta og færa í stílinn, ýkjum og svona, enda eigum við allar þekkta menn,“ segir Björk og vísar auðvitað í eiginmann sinn, leikarann Gunnar Helgason, ritstjórann Kolbein Tuma Daðason, og rapparann Arnar Frey Frostason.
Fá þeir útreið?
„Nei nei! Eða......ahhhsonnna aðeins. Við gerum alls konar fyndið og unglingarnir hennar Selmu eru líka í sýningunni. Það er hægt að gera margt mjög fyndið með unglinga og hægt að krydda þetta í stílinn.“
Vísir náði tali af Björk á frumsýningardegi en daginn áður hafði farið fram síðasta rennslið. „Ég er voða róleg á frumsýningardegi af því að það var svo góð stemning í gær. Svo er oft talað um að þetta sé kvennasýning en það var mikið af karlmönnum í gær og þeir voru sko ekki að hlæja minna enda er þetta geggjuð parasýning, vinkonusýning, það eru krakkar um tvítugt að mæta, þetta er fyrir alla, þú sérð mömmu þína í þessu, dóttur þína, frænku þína, manninn, kærastann, framtíðina eða fortíðina, við erum öll á mismunandi aldursstigum en það er tenging þarna við alla,“ segir Björk.
„Þarna erum við með frumsamin lög og fjöllum um allt sem viðkemur íslensku þjóðinni, ömmuhlutverkið, breytingaskeiðið, uppeldi barnanna - bara nefndu það - hvað tölum við ekki um? Fæðingar, íþróttir og svo við syngjum við um þessar útlitskröfur, þessar kröfur um að vera ungur að eilífu og að við séum að eldast en ekki drepast.“