Á fundi Seðlabankans miðvikudaginn 7. október, þegar sagt var frá ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%, var ítarlega fjallað um launaþróun hér á landi og hún borin saman við launaþróun erlendis. Þar kom fram að bæði nafnlaun og raunlaun hafa hækkað mun meira hér en til dæmis á öðrum Norðurlöndum.
Launakostnaður á hverja unna stund er jafnframt sá mesti í Evrópu ef launatengd gjöld eru tekin með.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri lagði mikla áherslu á að ekki væru forsendur til að hækka laun hér umfram það sem samið hefur verið um.
„Það er ekki þannig að við á Íslandi höfum fundið upp einhverja gullgerðarvél, þannig að við getum einhvern veginn verið á öðrum ferli en aðrar þjóðir,“ sagði hann.
„Eins og staðan er núna þá er kannski mesti ábatinn fyrir heimilin í landinu að fá lægri verðbólgu og lægri vexti og ég held að við öll ættum að geta verið sammála um það.“
Sex atvinnulausir um hvert laust starf
Upplýsingarnar um launaþróun komu fram í kynningu Þórarins G. Péturssonar varaseðlabankastjóra peningastefnu. Hann ræddi einnig um hvernig dregið hefði úr efnahagsvexti undanfarið. Hægt hefði á fjölgun starfa og þeim raunar fækkað á almennum vinnumarkaði. Um leið hefði atvinnuleysi þokast upp, en það var um 4% í ágúst, samkvæmt Vinnumálastofnun.
Þórarinn benti á að fyrir hvert laust starf væru sex atvinnulausir og þetta hlutfall hefði ekki verið svona hátt síðan í farsóttinni sjálfri fyrir nokkrum árum.
Engu að síður hefði verðbólga haldið áfram að aukast.
En hvað veldur verðbólgunni? Þórarinn benti á að skýringin væri ekki vegna innfluttrar verðbólgu og gera mætti ráð fyrir að innflutt verðbólga gæfi enn eftir – enda hefði gengi krónunnar styrkst mikið. Þá væru bein áhrif olíuverðshækkunar tiltölulega lítil hér á landi – þótt óbein áhrif gætu verið að koma fram.
Þórarinn sagði að verðbólgan væri fyrst og fremst vegna innlendra þátta.
Launakostnaðarstigið það hæsta í Evrópu
Og þá að launaþróuninni.
Þórarinn benti á að á síðustu 20 árum hefðu nafnlaun hér fjórfaldast. Á sama tíma hefðu raunlaun hækkað tvöfalt meira en á öðrum Norðurlöndum. Hækkun launa, langt umfram það sem þekktist í öðrum Evrópulöndum, hefði gert að verkum að launakostnaðarstigið á Íslandi væri það hæsta í Evrópu.
Launakostnaður í Þýskalandi væri um þrír fjórðu af því sem hann er hér. Launakostnaður á evrusvæðinu væri um tveir þriðju að meðaltali af launakostnaði á Íslandi og enn lægri ef farið væri sunnar í álfuna.
Þórarinn fjallaði einnig um að til að laun gætu hækkað – án þess að skila sér beint út í verðlag – þyrfti framleiðni að aukast samhliða. Það hefði ekki verið raunin.
Reyndar kom fram hjá Þórarni að hægst hefði á nafnlaunavexti, úr um 8% í um 6%, en það væri engu að síður mikið. Miðað við verðbólgumarkmið þyrfti nafnlaunavöxtur, að frádregnum framleiðnivexti, að vera um 2,5%. Þá þyrfti engan smávegis framleiðnivöxt en til lengdar hefði hann verið 1%.
Áhrif launahækkana á verðbólgu væru meiri en þau voru fyrir farsóttina sem hér gekk yfir fyrir nokkrum árum.
Ásgeir seðlabankastjóri og Þórarinn sátu fyrir svörum á fundinum og þar var meðal annars spurt út í áform hins opinbera að takmarka gjaldahækkanir við 2,5%, í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Báðir fögnuðu þessum yfirlýsingum – en settu líka varnagla.
Þórarinn sagði erfitt að sjá hvernig þetta gæti haldið til lengdar ef einn mikilvægasti kostnaðarþátturinn, það er að segja launin, hækkaði sífellt langt umfram 2,5%
Áhyggjur af útbreiddri verðtryggingu á Íslandi
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði mikilvægt að horft væri á heildarlífskjör, kaupmátt og vexti.
„Það sem við höfum miklar áhyggjur af er þessi útbreidda verðtrygging sem er á Íslandi og þá erum við ekki að tala um fjármagnsmarkaðinn,“ sagði hann. Ríkisútgjöld væru verðtryggð að ákveðnu marki og sömuleiðis laun.
„Ef það er alltaf hugsun verkalýðsfélaganna að ætla strax að bæta sér upp verðbólgu með því að heimta meiri launahækkanir, þá erum við komin í vítahring,“ sagði hann.
Vextir væru nú þegar mjög háir og nauðsynlegt væri að rjúfa vítahringinn og ekki heimta aftur meiri launahækkanir sem fyrirsjáanlega leiddu eingöngu til meiri verðbólgu og jafnvel enn hærri vaxta.
Þórarinn fagnaði því samkomulagi sem náðist á vinnumarkaði þriðjudagskvöldið 6. október en minnti á að laun ættu engu að síður að hækka töluvert um áramótin.
„Eftir því sem verðbólga verður þrálátari þá þarf enn harðari peningastefnuleg viðbrögð. Sem þýðir að það þarf að framkalla enn meiri hægingu á efnahagsumsvifum. Og hvað þýðir það? Það þýðir þá færri störf. Það eru ekki bara hærri vextir heldur líka færri störf. Ég held að þeir sem eru að semja um þetta ættu að hafa það líka í huga,“ sagði Þórarinn G. Pétursson.
Formaður RSÍ segir launahækkanir ekki aðalhvata verðbólgu
Spegillinn náði tali af Jakobi Tryggvasyni, formanni Rafiðnaðarsambands Íslands, í húsakynnum ríkissáttasemjara. Hann gat þá skotist út af fundi með öðrum verkalýðsleiðtogum þar sem staðan í samningamálum var rædd. Hann var spurður álits á málflutningi seðlabankastjóranna að ekki gengi að hækka laun langt umfram 2,5% verðbólgumarkmið.
Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri sagði á fundi í morgun að það væri erfitt fyrir fyrirtæki og hið opinbera að sjá til þess að verð og gjöld hækki ekki umfram 2,5% ef laun hækka umfram það. Hvað segir þú um það?
„Það er gömul saga og ný að þessu sé haldið fram,“ sagði hann. Skoða þyrfti heildarmyndina. Laun væru oft ekki nema lítill hluti af rekstrarkostnaði fyrirtækja. Í dagvöruverslun væru laun á bilinu 6-8% af heildarrekstrarkostnaði. Þá væri sérstakt að segja að það þyrfti að velta því beint út í verðlagið þótt laun hækkuðu eitthvað aðeins umfram 2,5%.
Ekki eru þó öll fyrirtæki á dagvörumarkaði og Jakob var spurður hvort hann teldi sem sagt ekki að launahækkanir, eins og rætt var um á fundinum, skiluðu sér á endanum út í verðlag.
Jakob sagði að launahækkanir væru ekki aðalhvati verðbólgu. Laun væru yfirleitt að elta verðlagsþróun eða aðra ytri hvata. Ef einhvers konar sátt ætti að nást um að launaþróun ætti að vera innan einhverra marka þyrfti að horfa á alla þá krafta sem virka á verðbólguna. Það hlyti að þurfa að búa til fyrirsjáanleika hjá launafólki.
Ef launafólk viti af því að launin hækki á hverju ári um 2-2,5% þurfi það líka að geta gengið að því sem vísu, svona þokkalega, að rekstrarkostnaður heimila hækki ekki meira en það.
Nú þyrfti að ná samkomulagi um hvernig væri hægt að láta samningana gilda út samningstímann. Það gangi ekki að eingöngu launafólk taki áhættuna vegna þeirrar óvissu sem nú væri uppi.
Vissu ekki að Breiðfylkingin væri að semja
Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undirritaði seint að kvöldi þriðjudagsins 6. október samkomulag við Samtök atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. VR, LÍV og Fagfélögin, sem félag Jakobs er hluti af, vissu ekki að þetta stæði til.
„Við fréttum af honum bara á meðan það var verið að undirrita hann,“ sagði Jakob.
Til viðbótar væru þau mjög óhress með hvernig SA hefðu mætt til leiks á miðvikudag. SA hefðu ekki lagt neitt nýtt á borðið. Þar að auki væru þau á leið í árshátíðarferð í dag, 8. október. „Þannig að samningsvilji eða leiðir til að nálgast okkur virðast ekki vera neinar.“