Halla segir í samtali við fréttastofu að fulltrúar félaganna geri ráð fyrir að fara á skrifstofu Samtaka atvinnulífsins milli klukkan tvö og þrjú í dag og segja upp samningunum.
Spurð hvort stjórnvöld séu meðal þeirra sem reyni að finna lausn segir hún:
„Ríkisstjórnin og sérstaklega forsætisráðherra hafa náttúrulega verið að reyna að hafa milligöngu og reyna að koma á svona lausnamiðaðri nálgun, við kunnum vel að meta það.“
Viðleitnin hafi þó ekki breytt stöðunni gagnvart Samtökum atvinnulífsins.
„Staðan í samningum okkar við Samtök atvinnulífsins er ennþá óbreytt.“
Ekkert tilboð komið fram
Halla segir að einhver símtöl og þreifingar hafi átt sér stað í morgun. Ekkert formlegt hafi hins vegar komið fram sem komi í veg fyrir fyrirhugaðar uppsagnir.
Spurð hvað henni hafi verið boðið svarar hún:
„Það er ekkert búið að bjóða neitt."
Hún segir þó ýmsa reyna að leggja sitt af mörkum til að finna lausn og að enn sé tími til stefnu.
„Við höfum nú sirka fjóra klukkutíma til stefnu þannig að við skulum spyrja að leikslokum. En þetta er staðan eins og hún er núna.“
Prenta út og undirrita
Halla var í húsnæði fagfélaganna þegar fréttastofa ræddi við hana fyrir hádegi. Þar var unnið að undirbúningi uppsagnanna.
„Ég er í húsnæði fagfélaganna með félögum okkar þar og þeir eru með ansi marga samninga þannig að þeir eru að prenta út og undirrita og við erum með svolítið færri samninga þannig að þetta er nokkurn veginn klárt hjá okkur þannig að það er staðan.“
Þótt fresturinn renni út klukkan fjögur er fyrirhugað að mæta fyrr til Samtaka atvinnulífsins.
„Fresturinn rennur út klukkan fjögur en við gerum ráð fyrir að vera þarna milli tvö og þrjú.“