Daði Már var að ljúka ávarpi sínu þar sem hann fjallaði um samstarf ríkis og sveitarfélaga þegar hávært flaut stöðvaði hann. Eftir rúma mínútu af fáti og flissi úr sal gat ráðherrann loks upplýst ráðstefnugesti um að engin hætta væri á ferðum.
„Ég hef fengið þær fréttir að allt sé i góðu. Þetta er hvorki verk forystu Sambands íslenskra sveitarfélaga til þess að losna við mig af sviðinu né merki um neina katastrófu. Mín orð áttu ekkert að verða fleiri, þannig að ég þakka fyrir mig,“ sagði Daði Már.
Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar og ráðstefnustjóri, tók þá við hljóðnemanum og sagði svona fara þegar frummælendur færu fram úr sér í tíma.
„Við erum sjúklega agressív á tímastjórnun hérna í dag,“ sagði Björg.
Aðstæður aldrei beti til þess að ná tökum á stöðunni
Í ávarpinu ræddi fjármálaráðherra meðal annars um kjarasamningaviðræður. Gríðarlega mikilvægt væri að ríki og sveitarfélög tryggðu sameiginlega stöðugleika með því að stilla verð- og launaákvörðunum í hóf. Fagnaði hann þeirri ábyrgð sem sveitarfélögin hefðu sýnt í því.
Sagðist Daði Már sannfærður um að ávextir þessa sameiginlega verkefnis létu ekki á sér standa. Aðstæður til þess að takast á við stöðuna væru nú eins góðar og þær gætu nokkurn tímann orðið.