Fjallað var um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12.
Rekstrarstaða framhaldsskólanna hefur sjaldan verið jafn slæm og hún er í dag segir formaður Félags framhaldsskólakennara.
Fækka ætti borgarfulltrúum í Reykjavík, að mati borgarstjóra, sem segir fjölgun þeirra úr fimmtán í tuttugu og þrjá ekki hafa bætt málefni borgarinnar. Borgarstjórn fái að ákveða fjöldann sjálf og telur hún að fækkun myndi veita fulltrúunum sterkara umboð frá kjósendum.
Bryndís Haraldsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, leggur til að reglum um fæðingar- og foreldraorlof verði breytt og komið í veg fyrir að greiðslur til foreldra sem eignast börn með skömmu millibili séu lækkaðar vegna þess. Hún vonast eftir góðu samstarfi á þingi vegna málsins.
Ann Carson, íslensk-kanadískur rithöfundur, hlaut í dag bókmenntaverðlaun Nóbels.
Í sportinu fjöllum við um körfuboltann og forsetakjör FIFA.