Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gagnrýnir forystu VR harðlega í nýjum pistli á Facebook. Hún sakar Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um að hóta ófriði á opinberum vinnumarkaði og segist ekki skilja með hvaða umboði það sé gert.
Sólveig ver jafnframt ákvörðun Eflingar um að halda kjarasamningum í gildi. Hún segir aðgerðir stjórnvalda fela í sér raunveruleg verðmæti sem félagið hafi barist fyrir árum saman og að „aðeins fávíst fólk“ geti fúlsað við þeim.
Efling, Starfsgreinasambandið og Samiðn undirrituðu á þriðjudagskvöld samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að halda samningunum í gildi. Sólveig skrifaði undir með fyrirvara um samþykki trúnaðarráðs Eflingar, sem samþykkti samkomulagið einróma í gærkvöldi, að hennar sögn.
Spyr með hverra leyfi Halla hóti ófriði
Sólveig segir ákvörðun VR um að segja upp samningum vera rétt félagsins. Hún gerir hins vegar athugasemdir við ummæli Höllu um mögulegar uppsagnir samninga á opinberum vinnumarkaði.
„Það ætti að koma öllum verulega á óvart, enda er það svo að VR er ekki, eftir því sem ég best veit, með neina félagsmenn sem starfa á opinberum vinnumarkaði.“
Hún segist ekki geta ímyndað sér að Halla hafi heimild frá formanni BSRB til að hóta uppsögn samninga félagsfólks þeirra samtaka. Slíkar ákvarðanir séu teknar í stjórnum og trúnaðarráðum viðkomandi félaga.
„Ég hef aldrei áður upplifað að formaður VR hóti ófriði hjá opinberum starfsmönnum í kjaradeilum félagsins. Hér er verið að skrifa nýjan kafla í samskiptum svokallaðra aðila vinnumarkaðarins – í hvaða tilgangi og með hverra leyfi það er gert reynist mér erfitt að skilja.“
Halla sagði í viðtali við Vísi í morgun að uppsögn samninga VR gæti virkjað forsenduákvæði hjá opinberum stéttarfélögum. Þau þyrftu sjálf að ákveða hvort þau fylgdu þeirri leið.
„Þau munu þurfa að taka ákvörðun um hvort þau fylgi því eftir.“
Segir umsamdar launahækkanir vera í húfi
Ein helsta ástæða þess að Efling vill halda samningunum í gildi er, að sögn Sólveigar, launahækkun sem þegar hefur verið samið um og kemur til framkvæmda í janúar 2027. Þá hækki laun verkafólks sem fær greitt samkvæmt töxtum um 4,99 prósent.
„Ef að við hefðum ákveðið að segja upp samningunum hefði þessi hækkun ekki komið til og félagsfólk Eflingar hefði þurft að gera sig tilbúið til að fara í hörð átök á vinnumarkaði til að ná henni til baka, í þeirri von að geta hækkað hana eitthvað.“
Hún varar einnig við því að uppsagnir samninga á opinberum vinnumarkaði myndu fella niður umsamdar launahækkanir tugþúsunda einstaklinga og leiða til undirbúnings verkfallsátaka.
Sólveig bendir á að um fimm þúsund félagsmenn Eflingar starfi á opinberum vinnumarkaði, flestir konur í umönnunarstörfum. Fulltrúar þeirra í stjórn og trúnaðarráði hafi tekið þátt í ákvörðuninni um að segja ekki upp samningum.
Atvinnuleysi kalli á forsjá
Aukið atvinnuleysi vegur einnig þungt í ákvörðun Eflingar. Sólveig segist sjá atvinnuleysi meðal félagsfólks aukast frá einum mánuði til annars, sérstaklega meðal aðflutts verkafólks sem hafi starfað í byggingariðnaði, ferðaþjónustu og veitingageiranum.
„Forysta félags verkafólks, þeirra sem að vinna líkamlega og andlega erfiðisvinnu, er ekki starfi sínu vaxin ef að hún neitar að horfast í augu við efnahagslegan raunveruleika stéttarinnar sem að hún vinnur fyrir og með.“
Hún segir forystu þurfa að hlusta á félagsfólk og meta stöðuna jafnt og þétt. Einstrengingsháttur, kreddur og keppnisskapur megi ekki ráða för og vísar hún til málsháttarins: „Kapp er best með forsjá.“
Áralöng barátta gegn launaþjófnaði
Sólveig leggur mikla áherslu á að kjarasamningar snúist um fleira en tölur á launaseðli. Meðal aðgerða stjórnvalda sem hún nefnir eru frumvarp um févíti, sem veiti launafólki rétt á viðbótargreiðslu vegna brota atvinnurekenda á lágmarkskjörum, uppbygging íbúða fyrir tekjulágt fólk, hækkun barnabóta og innleiðing leigubremsu.
Hún segir Eflingu hafa barist fyrir févíti frá árinu 2019. Launaþjófnaður og kjarasamningsbrot séu raunveruleg vandamál í lífi verkafólks, sérstaklega aðflutts fólks, og félagið geri árlega launakröfur upp á mörg hundruð milljóna króna fyrir hönd félagsfólks.
Sólveig þakkar stjórnvöldum og forystu ASÍ fyrir vinnuna en segir afstöðu VR og fagfélaganna valda vonbrigðum.
„Okkur finnst leitt að sú mikla og mikilvæga vinna hafi ekki nægt til að friða formann VR og forystu fagfélaganna. Þau hafa greinilega allt annað mat á stöðunni en við.“
Hún segir Eflingarfólk þekkja verðmæti þess árangurs sem náðst hafi og lýkur pistlinum með þessum orðum:
„Aðeins fávíst fólk sem þekkir ekki baráttuna og alvarleika vandamálanna sem við tökumst við á hverjum degi getur tekið þá ákvörðun að fúlsa við þeim.“