Lögreglan í Thames Valley í Bretlandi hefur viðurkennt að þær leitarheimildir, sem voru notaðar til að leita á heimilum Andrews Mountbatten-Windsors, fyrrum prins, hafi verið ólögmætar. Þetta kom fram í málflutningi fyrir dómstól í Lundúnum í dag.
Andrews höfðaði mál gegn bresku lögreglunni vegna húsleitar sem var gerð á heimili hans í febrúar.
Lögreglan viðurkenndi fyrir dómi að þær upplýsingar sem voru lagðar fram til grundvallar leitarheimildunum hafi verið rangar.
Dró lögregluna fyrir dóm vegna húsleitarinnar
Andrew var handtekinn af lögreglunni í Thames Valley í febrúar, vegna gruns um brot í opinberu embætti.
Handtaka Mountbatten-Windsors vakti mikla athygli, ekki síst þegar birtar voru myndir af honum álútum í aftursæti bíls þegar honum var sleppt úr haldi.