Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekki rétt að samtökin hafi ekki komið til móts við VR, LÍV og fagfélögin í kjaraviðræðum líkt og formaður VR hefur haldið fram. Samninganefndir beggja aðila funda í Húsi atvinnulífsins.
Vildi ekki gefa upp efni fundarins
Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA vildi ekki gefa upp hvað verði rætt á fundi Samtaka atvinnulífsins með VR, LÍV og Fagfélögunum. Fréttastofa náði tali af honum fyrir fundinn, sem nú stendur yfir.
„Það er efni fundarins, hvað það verður. Við ætlum að fá tíðindi af þeirra fundum sömuleiðis. Það liggur auðvitað fyrir að einhverjir fundir hafa verið með stjórnvöldum og við höfum tekið þátt í þeim fundum frá því í vor. Og þeir skipta máli í heildarsamhenginu. Þeir gætu hafa liðkað eitthvað fyrir aðilunum. Við verðum að láta það koma í ljós,“ sagði Bjarni við Önnu Lilju Þórisdóttur fréttamann rétt áður en fundur hófst.
Bjarni segir ekki rétt að Samtök atvinnulífsins hafi ekki komið til móts við VR, LÍV og fagfélögin í kjaraviðræðum, líkt og Halla Gunnarsdóttir formaður VR hefur haldið fram.
„Það hafa allir séð það. Fjölmörg fyrirtæki hafa stigið fram og sagst ætla að frysta verðlag og taka þátt í því að halda aftur af verðbólguþróun á komandi mánuðum og inn í næsta ár. Sömuleiðis höfum við náð niðurstöðu við mjög stóran hluta vinnumarkaðarins um að stytta samninginn,“ segir Bjarni.
SA hafi verið í samtali við VR um þessa sömu hluti.
„Þegar menn ná ekki saman þýðir það ekki að menn hafi engu spilað út, það bara þýðir að menn hafi ekki náð saman,“ sagði Bjarni.
Forsendunefnd kölluð í hús
Spurður hvort það sé mögulegt fyrir VR að fá meira en restin af vinnumarkaðinum hefur samþykkt nú þegar sagði Bjarni það almennt ekki ganga þannig fyrir sig.
En er eitthvað nýtt sem þið gætuð komið með að borðinu á lokametrunum?
„Þetta er góð spurning. En ég get ekki svarað henni núna vegna þess að ég þarf að fara á fund,“ sagði Bjarni.
Anna Lilja Þórisdóttir fréttamaður er stödd í Húsi atvinnulífsins. Hún segir fulltrúa samninganefndanna tveggja sitja hvor í sínu herberginu eins og sakir standa, þar sem þær ráða ráðum sínum. Rétt fyrir klukkan þrjú hafi forsendunefndin verið kölluð í hús.